Tryggingar

Betri kjör hjá Verði

Nauðsynlegt er að hafa góðar tryggingar sem veita þér og fjölskyldu þinni örugga vernd ef eitthvað óvænt ber að höndum. Því býður Landsbankinn Vörðufélögum sínum sérstök vildarkjör á tryggingum hjá tryggingafélaginu Verði.

  • 30% afsláttur af tyggingariðgjöldum auk 10.000 kr. afsláttar af heildariðgjöldum fyrsta árið.

Allt á einum stað

Komdu við í næsta útibúi Landsbankans og fáðu hagstæðari tryggingar eða hringdu í síma 410 4000. Þú þarft ekki að fara á tvo staði því við göngum frá málinu fyrir þig og þú sparar tíma, fyrirhöfn og peninga.

Vefsíða Varðar

Launavernd

Launavernd gerir þér kleift að vernda fjárhag fjölskyldunnar ef eitthvað kemur upp á. 

Með Launavernd byggir þú upp viðbótarlífeyrissparnað og tryggir þér áframhaldandi tekjur komi til launamissis vegna fráfalls, sjúkdóma eða örorku. 

Þannig færðu fjárhagslega vernd gegn áföllum sem hefðu annars lækkað eða stöðvað mánaðarlegar tekjur fjölskyldunnar.

Hvað felst í Launavernd?

  • 70% launa þinna í sjö ár til erfingja ef þú fellur frá 
  • 70% launa þinna í tvö ár ef þú veikist af tilteknum alvarlegum sjúkdómum 
  • Eingreiðsla ef barn veikist af tilteknum alvarlegum sjúkdómum 
  • Val um örorkuvernd sem tryggir 70% launa þinna í sjö ár vegna örorku 
  • Viðbótarlífeyrissparnaður sem er laus til útborgunar frá 60 ára aldri 
  • Val um meiri eða minni vernd en 70%, allt eftir þínum þörfum