Tilboð til Vörðufélaga

Tilboð í World Class

Vörðufélögum býðst að kaupa kort í heilsurækt á sérstöku tilboðsverði. Um er að ræða tvenns konar tilboð.

  • Ef keypt er árskort fylgir frír aðgangur að Baðstofu fyrsta mánuðinn.
  • 30% afsláttur af þriggja mánaða korti.

Laugarvatn Fontana

Vörðufélagar fá 2 fyrir 1 í Laugarvatn Fontana ef greitt er með greiðslukorti frá Landsbankanum. Laugarvatn Fontana er náttúrubaðstaður byggður yfir gufuhverinn fræga sem heimamenn og gestir hafa nýtt til heilsubaða fram að þessu. Baðstaðurinn hefur verið gerður upp og gefst viðskiptavinum nú kostur á að baða sig í þrískiptri baðlaug, dvelja í heitri gufunni og slaka á í fallegu umhverfi. Laugarvatn Fontana er staðsett við Laugarvatn. www.fontana.is

Leikfélag Akureyrar býður Vörðufélögum 25% afslátt

Leikfélag Akureyrar setur upp margar spennandi sýningar í vetur. Vörðufélagar fá 25% afslátt af miðum sem keyptir eru í forsölu. Upplýsingar um næstu sýningar Leikfélagsins og listamenn er að finna á vef þess www.leikfelag.is

Aukakrónutilboð

Vörðufélagar í Aukakrónusöfnun geta fylgst með mánaðarlegum tilboðum á síðu Aukakróna.