Lánakjör

Vörðufélagar njóta traustsins með hagstæðari lánakjörum. Sérfræðingar Landsbankans eru þér ávallt innan handar um ráðgjöf hvort sem þú vilt endurfjármagna fasteignina eða þarft á yfirdrætti að halda.

Yfirdráttarlán

Auk þess að fá hagstæðari kjör á yfirdrætti geta Vörðufélagar fengið rýmri yfirdráttarheimild. 

Vörðufélagar greiða ekkert heimildargjald af yfirdráttarheimildinni og fá allt að 50% afslátt af lántökugjöldum. Nánar um útlán

Íbúðalán

Landsbankinn býður fjölbreytt íbúðalán eftir ólíkum þörfum. Vörðufélagar fá faglega ráðgjöf þar sem farið er yfir stöðuna, greiðslumat framkvæmt og hentugir kostir lagðir fram.

Hægt er að reikna út greiðslubyrði og eftirstöðvar mismunandi lána og bera saman á einfaldan hátt með reiknivél fasteignalána.