Klassi

Markmið Klassa er að leiðbeina ungu fólki hvernig fara má vel með peninga og spara. Félagar í Klassa fá ýmis fríðindi, geta sótt um tómstundastyrk og nýtt sér Klassatilboð.

Klassi

Klassi er þjónusta fyrir unga fólkið í Landsbankanum. Allir viðskiptavinir bankans á
aldrinum 9-15 ára sem eiga reikning eða inneign í sjóðum Landsbankans eru félagar í Klassa. Klassi leiðbeinir viðskiptavinum hvernig fara má vel með fjármuni og spara til lengri tíma með góðum innlánsformum.

Fríðindi og leikir

Tómstundastyrkur Klassa

Þú getur þú sótt um tómstundastyrk til 5. febrúar sem hjálpar þér að stunda áhugamálin. Veittir verða tíu 20.000 kr. styrkir. Þetta er kjörið tækifæri til að fá fjárhagslegan stuðning og gera það einfaldara að stunda áhugamálin. Allir virkir Klassafélagar sem eru með hreyfingu á reikningum sínum á síðustu 12 mánuðum og iðka tómstundir eiga jafna möguleika á að vera dregnir út.

Sækja um tómstundastyrk

Boltabaninn

Verður þú meistari í Boltabananum? Taktu þátt og fáðu stigin þín skráð í stigatöflu.

Sá Klassafélagi sem hefur náð flestum stigum þann 22. febrúar kl. 12:00 fær Playstation 3 leikjatölvu í verðlaun.

Spila boltabanann


Klassagjafir

Nýir Klassafélagar sem eiga reikning í Landsbankanum eða inneign í sjóðum Landsbankans fá veglega inngöngugjöf. Þeir geta valið á milli Klassabols eða Klassaprjónahúfu.

Klassafélagar geta einnig fengið almenna gjafavöru þegar þeir koma og leggja inn á reikninginn sinn.

Stórafmælisgjöf Klassa

Þegar virkir Klassfélagar verða 10 ára er þeim óskað til hamingju með áfangann og þeir fá afmælisgjöf frá Landsbankanum. 

Til að vera virkur Klassafélagi þarf að vera hreyfing á reikningnum undanfarna 12 mánuði.


Klassakortið

Hraðbanka- og gjaldkerakort

  • Fyrir viðskiptavini 9-12 ára
  • Ekkert árgjald
  • Betri vextir en á almennum tékkareikningum
  • Virkar í hraðbönkum og hjá gjaldkerum
  • Má nota í hraðbönkum heima og erlendis
  • Gegn framvísun kortsins fá Klassafélagar spennandi tilboð og góða afslætti.

Debetkort

  • Fyrir viðskiptavini 12-15 ára
  • Ekkert árgjald
  • Engin færslugjöld
  • Betri vextir en á almennum tékkareikningum
  • Má nota í hraðbönkum og verslunum hér heima og erlendis
  • Síhringikort
  • Gegn framvísun kortsins fá Klassafélagar spennandi tilboð og góða afslætti.

Klassafélagar þurfa að fá samþykki foreldra fyrir stofnun og koma þarf með mynd í næsta útibú Landsbankans.

Tilboð

Klassafélögum bjóðast spennandi tilboð og góðir afslættir hjá samstarfsaðilum Klassa gegn framvísun Klassakorts. Samstarfsfélagar Klassa eru:

  • ÍTR - 27% afsláttur í sund.
  • Laser Tag - 15% afsláttur af aðgangseyri 
  • Brim - 10% afsláttur af öllum vörum.

Netbanki fyrir Klassafélaga

Klassafélagar 13 ára og eldri eiga kost á því að fá aðgang að netbankanum. Í netbankanum geta Klassafélagar skoðað reikningana sína, millifært, fyllt á símakort og margt fleira. Hægt er að sækja um aðgang að netbankanum í öllum útibúum Landsbankans en undirskrift foreldris eða forráðamanns þarf að fylgja umsókn.

Meniga fyrir Klassafélaga

Klassafélagar sem eru með aðgang að netbankanum geta fengið góða yfirsýn yfir fjármálin sín og sett sér sparnaðarmarkmið með aðgangi að Meniga heimilisbókhaldi.