Söfnun og notkun á Aukakrónum

Hvernig safna ég Aukakrónum?

Þú safnar Aukakrónum þegar þú notar A-kortið þitt. Landsbankinn endurgreiðir 0,4%-0,5% af allri innlendri verslun og af boðgreiðslum og því er um að gera að nota A-kortið.

  • Allar áskriftir að blöðum, tímaritum, sjónvarpi, síma og interneti
  • Orkureikninga
  • Tryggingar
  • Bensín og bílavörur
  • Ferðalög
  • Veitingahús og afþreyingu
  • Fasteigna- og leikskólagjöld

Notkun Aukakróna 

Áður en þú getur byrjað að nýta Aukakrónurnar þínar þarft þú að hlaða þeim yfir á úttektarkortið í Einkabankanum. Þegar þú hefur hlaðið Aukakrónunum á úttektarkortið getur þú verslað fyrir þær hjá öllum samstarfsaðilum Aukakróna. Úttektarkortið virkar alveg eins og debetkort, en notkun þess takmarkast við samstarfsaðila Aukakróna. Heimildin þín á úttektarkortinu miðast við þá upphæð sem þú hefur hlaðið inn á kortið.

  • Það er engin lágmarksfjárhæð þegar þú verslar fyrir Aukakrónur hjá samstarfsaðilum.
  • Hægt er að nota Aukakrónur sem hluta af greiðslu
  • Aukakrónur gilda alltaf hjá samstarfsaðilum, hvort sem um er að ræða tilboð eða útsölur
  • Jafnframt getur þú ráðstafað þínum Aukakrónum til annarra sem safna Aukakrónum.

Hvernig hleð ég úttektarkortið? 

Þegar þú vilt nýta uppsafnaðar Aukakrónur hleður þú þeim einfaldlega inn á úttektakortið og notar það síðan hjá þeim samstarfsaðilum sem þér hentar.

  • Til að hlaða kortið þarftu að skrá þig inn í netbankann. 
  • Einnig er hægt að hringja í Ráðgjafa- og þjónustuver til að hlaða úttektarkortið. 
  • Í netbankanum getur þú jafnframt séð hversu mörgum krónum þú hefur safnað, hversu margar eru á leiðinni eða millifært þær á einhvern annan sem er líka að safna Aukakrónum.

Viðbótarsöfnun Námufélaga 

Námufélögum Landsbankans býðst að fá Námu A-kort sem er kreditkort sem safnar Aukakrónum. Fríðindin sem fylgja kortinu eru sérstaklega sniðin að þörfum námsmanna.

Námu A-kortið veitir Námufélögum sveigjanleika til að greiða fyrir vörur og þjónustu á netinu. Kortinu fylgir einnig val um tvær mismunandi ferðatryggingar.

Auk þess að safna Aukakrónum af allri innlendri verslun á Námu A-kortinu fá Námufélagar verulega viðbótarsöfnun hjá samstarfsaðilum Aukakróna. Jafnframt fá Námu A-korthafar Aukakrónur fyrir regluleg viðskipti við Landsbankann.

Námufélagar safna Aukakrónum hjá Landsbankanum
Fjöldi Aukakróna
Fyrir innlenda verslun á Námu A-korti 4 Aukakrónur fyrir hverjar 1000 kr.
Fyrir hverja debet- eða kreditkortafærslu 2 Aukakónur hver færsla
Fyrir að vera í LÍN-þjónustu Námunnar 1.000 Aukakrónur árlega
Fyrir inngöngugjöf í Námuna 2.000 Aukakrónur
Fyrir að fá SMS tilboð frá samstarfsaðilum 5 Aukakrónur fyrir hvert SMS
Dæmi um söfnun á ári
Aukakrónur á ári
50.000 kr. velta á mánuði 2.400 Aukakrónur
-þar af 1/3 hjá samstarfsaðilum 6.000 Aukakrónur
3 SMS á mánuði 180 Aukakrónur
LÍN-þjónusta 1.000 Aukakrónur
Inngöngugjöf í Námuna 2.000 Aukakrónur
Færslur á debet- og kreditkortum 480 Aukakrónur
Heildarupphæð Aukakróna 12.060 kr.

Viðbótarsöfnun Vörðufélaga 

Vörðufélögum Landsbankans býðst að fá A-kort sem eru kreditkort sem safna Aukakrónum. Vörðufélagar með A-kort geta fengið umtalsverð viðbótarfríðindi fyrir ýmsa þjónustu hjá Landsbankanum.

Auk þess að safna Aukakrónum af allri innlendri verslun fá Vörðufélagar verulega viðbótarsöfnun hjá samstarfsaðilum Aukakróna. Jafnframt fá Vörðufélagar Aukakrónur fyrir regluleg viðskipti við Landsbankann.

Fyrir notkun á kreditkorti
Notkun Aukakrónur
Hver innlend kortafærsla 2
Af hverjum 1.000 krónum 4 til 9 eftir tegund korts
Fyrir valda þjónustuþætti
Þjónustuþáttur Aukakrónur
Kreditkort 2.000 árlega
Vörðuráðgjöf 500 árlega
Reglubundinn sparnaður yfir 5.000 kr. á mánuði 500 árlega
Sparireikningur - Inneign er yfir 250.000 kr. 500 árlega
Fasteignagrunnur 500 árlega
Námslokakjör 500 árlega
Vaxtareikningur Varðan 60 500 árlega
Virk viðskipti barnaí Sprotunum 500 árlega
Virk viðskipti barna í Klassa 500 árlega
Greiðsludreifing 500 árlega
Fasteignalán 500 árlega
Útlán yfir 250.000 kr. í skilum 500 árlega
Skilvísi 500 árlega