Leiðbeiningar vegna skráningar með eyðublöðum
- Lestu almenna viðskiptaskilmála (pdf) áður en sótt er um.
- Fylltu út viðeigandi samning, umboð, skattaform og beiðni um flutning eigna frá "Wall Street á vefnum" til E*TRADE (ef um flutning er að ræða, annars bara samning). Það er ýmist hægt að fylla þau út á tölvu eða prenta þau út og handskrifa umsóknirnar.
- Mættu í næsta útibú Landsbankans með samningsblöð, debetkort og ökuskírteini eða vegabréf. Að kröfu skattayfirvalda í Bandsríkjunum þarf starfsmaður bankans að taka ljósrit af debetkorti og vegabréfi eða ökuskírteini. Þess vegna er mikilvægt að þú mætir með þessi skilríki með þér.
- Næst færð þú staðfestingu á skráningu í tölvupósti. Í póstinum er reikningsnúmer, notendanafn og lykilorð.
- Í framhaldi af því munt þú fá bréf frá E*TRADE Bank Danmark með viðskiptalykilorði þínu. Viðskiptalykilorðið er nauðsynlegt til að framkvæma viðskipti eða breyta persónulegum upplýsingum. Við mælum með að þú varðveitir lykilorðið vel eða breytir því í eitthvað sem þú átt auðvelt með að muna. Starfsmenn E*TRADE hafa ekki aðgang að viðskiptalykilorðum viðskiptavina og ef þú glatar þínu tekur það okkur nokkra daga að útbúa nýtt.
- Athugaðu að til þess að vera viðskiptavinur E*TRADE þarftu að vera 18 ára, fjárráða og með aðgang að Einkabanka Landsbankans. Skráðu þig í Einkabankann.
Til að skoða skjölin og fylla þau út getur þú að hlaðið niður forritinu Adobe Acrobat.
Umsóknir