Vegna laga um gjaldeyrismál sem eru í gildi hér á landi er ekki heimilt að leggja peninga inná Saxo Privatbank reikninga hvorki íslenskan né erlendan gjaldeyri, sömuleiðis er ekki heimilt að færa bréf frá innlendum vörsluaðila inná Saxo Privatbank reikninga en ef þú átt verðbréf erlendis þá er heimilt að færa þau á milli vörsluaðila, s.s. frá núverandi vörsluaðila inná reikning þinn hjá Saxo Privatbank. Sjá nánar um gjaldeyrislögin.
Til að millifæra inn á Saxo Privatbank þarft þú að eiga bankareikning hjá Landsbankanum (tékkareikning eða sparisjóðsbók) og vera með aðgang að Einkabankanum. Til að opna bankareikning hjá Landsbankanum sækir þú einfaldlega um í næsta útibúi.
Starfsfólk Landsbankans getur aðstoðað þig við að færa verðbréf frá öðrum vörsluaðilum inn í Saxo Privatbank. Viljir þú fá aðstoð við að flytja bréfin skaltu senda tölvupóst á netfangið saxoprivatbank@landsbankinn.is.
Landsbankinn hf. Austurstræti 11, 155 Reykjavík, Kt. 471008-0280
Swift: NBIIISRE Reglur Lagalegur fyrirvari Umboðsmaður viðskiptavina Veftré