Hér að neðan er stutt dæmi almenns eðlis um hvernig tryggingaþörf gæti verið metin en að sjálfsögðu eru aðstæður hvers og eins mismunandi og þarfnast sérstakrar skoðunar og er því dæmið með fyrirvara um forsendur.
1. Forsendur
- 30 ára háskólamenntaður reyklaus karlmaður með 250.000 kr. mánaðarlaun
- Giftur með 2 börn: annað 2 ára og hitt 5 ára
- Hjónin eiga raðhús sem metið er á 25 milljónir kr. en skulda í því 15 milljónir kr.
- Þau eiga tvo bíla sem samtals eru um það bil 2 milljóna kr. virði en þar af er 1 milljón kr. samtals í bílalán
- Tryggingin skuli gilda til 60 ára aldurs
Til að ná markmiðum sínum þarf maðurinn að sjúkdómatryggja sig fyrir 3,5 milljónir króna og líftryggja sig fyrir 15,5 milljónir kr. Fyrir þessa líf- og sjúkdómatryggingu eru greiddar aðeins um 2.600 kr. á mánuði og er iðgjaldið fast til loka samningsins við 60 ára aldur.
2. Dæmi um mat á þörf á líftryggingu
Skammtímakostnaður
- Útfararkostnaður er að lágmarki 500.000 kr.
- Yfirdráttur sem gott væri að greiða niður er oft hátt í 1 milljón kr. hjá fólki á þessum aldri sem er í miklum fjárfestingum
- Bílalán samtals 1 milljón kr.
- Aðrar skammtímaskuldir neyslulán, raðgreiðslur, boðgreiðslur og þess háttar eru engar í þessu tilfelli
- Samtals: 2,5 milljónir kr.
Langtímakostnaður á mánuði
Hvað myndi hann vilja skilja eftir sig á mánuði, þangað til yngsta barn nær 18 ára aldri? Hann myndi sennilega vilja að tekjur heimilisins væru hátt í það sem þær eru núna til þess fjölskylda hans geti áfram leyft sér sama lífsstíl og áður: 200.000 kr. í tekjur á mánuði í 16 ár.
Skammtímatekjur
- Dánarslysabætur skv. kjarasamningi: Algengt er að bætur vegna andláts af slysförum sé í kjarasamningum allt að (hámarki) 3,5 milljónir kr. ef viðkomandi á 2 börn. Sé einstaklingur ókvæntur og barnlaus gæti sennileg tala numið um 1,8 milljónir kr.
- Líftrygging skv. sjúkrasjóði: Þeir sem rétt eiga á greiðslum úr sjúkrasjóði geta átt von á um 400.000 kr. greiðslu.
- Önnur líftrygging (t.d. hjá íslensku tryggingafélagi): Skv. okkar reynslu eru langsamlega flestir einungis tryggðir fyrir lágum upphæðum sem myndu engan veginn duga ef til kæmi. Dæmi um algenga líftryggingarupphæð væri 3 milljónir kr.
- Makalífeyrir úr lífeyrissjóði er einungis til tveggja ára og eru aðeins 50% af áunnum réttindum maka. Gera má ráð fyrir að nám og þess háttar hafi gert að verkum að áunnin réttindi séu ekki mikil.
- Samtals: 6,4 milljónir kr.
Langtímatekjur á mánuði
Hvað fær fjölskyldan í tekjur þangað til að yngsta barn verður 18 ára án þess að gera nokkrar ráðstafanir?
- Barnalífeyrir frá Tryggingastofnun: Þessi upphæð er sú sama og meðlag eða um 16.000, ótekjutengt fyrir alla.
- Barnalífeyrir úr lífeyrissjóði: Þessi upphæð er sú sama og meðlag eða um 10.000 kr., ótekjutengt fyrir alla. 26.000 kr. á mánuði fyrir hvert barn í 14 til16 ár. Samtals 52.000 kr. á mánuði.
3. Dæmi um mat á þörf á Sjúkdómatryggingu
Skammtímakostnaður
Í þessu dæmi gerum við ráð fyrir sömu skammtímaútgjöldum sem fjölskyldan myndi vilja greiða niður ef veikindi kæmu upp.
- Yfirdráttur 1 milljón kr.
- Bílalán samtals 1 milljón kr.
- Aðrar skammtímaskuldir engar í þessu tilfelli
- Að auki getur bættst við töluverður kostnaður vegna lyfja- og sjúkrakostnaðar, jafnvel breytinga á húsnæði og heimahjálp
- Samtals: 2 milljónir kr.
Langtímakostnaður á mánuði
Hér horfum við til þess tíma sem óskað er eftir að tekjur í stað launa verði eftir skatta í 2-4 ár sem á að nægja til að takast á við sjúkdóminn og gefa sér nægan tíma til að ná fullri heilsu. Einnig þarf að ákveða hvaða upphæð dugi til að standa undir rekstri heimilisins (nettó).
Í þessu dæmi gerum við ráð fyrir ósk um 200.000 kr. tekjur á mánuði í 2 ár.
Skammtímatekjur
- Tekjur úr sjúkrasjóði stéttarfélaga: Nokkuð algengt er að stéttarfélög greiði um 80% af launum í 6 mánuði vegna alvarlegra sjúkdóma.
- Tekjur skv. kjarasamningi: Nokkuð algengt er að þrenn mánaðalaun séu greidd vegna veikinda.
- Samtals: 1.950 þúsund kr.
Langtímatekjur á mánuði
Almannatryggingar: Allir eiga rétt á sjúkradagpeningum sem eru um 1.700 kr. á dag í 22 daga á mánuði sem gera samtals um 37.000 á mánuði. Við bætast síðan 224 kr. á dag með hverju barni. Hægt er að velja hversu lengi viðkomandi vill að bæturnar endist. Algengast er að bæturnar séu greiddar út á 2-3 árum.
Samtals: 47.000 kr.
Niðurstaða: Aðeins 2.600 kr. á mánuði
Til að ná markmiðum sínum þarf maðurinn að sjúkdómatryggja sig fyrir 3,5 milljónir króna og líftryggja sig fyrir 15,5 milljónir. Fyrir þessa líf- og sjúkdómatryggingu eru greiddar um 2.600 kr. á mánuði og er iðgjaldið fast til loka samningsins við 60 ára aldur. Hins vegar lækkar tryggingarverndin jafnt og þétt á tímabilinu enda minnkar þörfin fyrir hana við eignauppbyggingu fjölskyldunnar.