Skuldabréf

Skuldabréf

Landsbankinn veitir þjónustu við kaup og sölu skuldabréfa og ráðgjöf um val á einstökum flokkum. Skuldabréf  er sá  eignaflokkur sem alla jafna er mest viðskipti með á degi hverjum. Á Íslandi er fjölbreytt úrval skuldabréfa með ábyrgð ríkisins í boði, bæði verðtryggð og óverðtryggð.

Algengustu flokkar skuldabréfa með ábyrgð ríkisins eru: Íbúðabréf (HFF), Ríkisbréf (RIKB) og Ríkisvíxlar (RIKV).

Verðtryggt 25.5.2013 23:46 (Upplýsingar eru 15 mínútna gamlar)
Auðkenni Líftími Kaupkrafa Sölukrafa Kaupverð Söluverð Ávöxtunarkrafa Verðbreyting Fjöldi
HFF 15 0914 0,81 1,91% 0,72% 101,50 102,48 1,91% 0,00% 0
HFF 15 0224 5,25 2,37% 2,29% 107,45 107,91 2,37% 0,00% 0
HFF 15 0434 9,74 2,58% 2,46% 111,80 113,04 2,58% 0,00% 0
HFF 15 0644 13,37 2,76% 2,70% 114,00 114,90 2,76% 0,00% 0
RIKS 21 0414 7,01 2,22% 2,15% 111,35 111,86 2,22% 0,00% 0
Óverðtryggt 25.5.2013 23:46 (Upplýsingar eru 15 mínútna gamlar)
Auðkenni Líftími Kaupkrafa Sölukrafa Kaupverð Söluverð Ávöxtunarkrafa Verðbreyting Fjöldi
RIKB 13 0517 0,00 0,00% 0,00% 100,00 100,12 6,76% 0,00% 0
RIKB 16 1013 3,08 4,35% 4,30% 105,08 105,25 4,35% 0,00% 0
RIKB 19 0226 4,78 5,22% 5,19% 117,16 117,35 5,22% 0,00% 0
RIKB 22 1026 6,98 6,21% 6,16% 107,21 107,60 6,21% 0,00% 0
RIKB 25 0612 7,92 6,27% 6,20% 114,30 115,00 6,27% 0,00% 0
RIKB 31 0124 10,77 6,59% 6,52% 99,00 99,76 6,59% 0,00% 0

Ríkisskuldabréf

Þeir sem að gefa út skuldabréf fyrir hönd ríkisins eru Íbúðalánasjóður og Seðlabankinn. Íbúðalánasjóður gefur út íbúðabréf og Seðlabankinn sér um útgáfu ríkisbréfa og ríkisvíxla. Bréfin eru gefin út til ákveðins tíma og bera því ólíka gjalddaga. Íbúðabréfin hafa hvað lengstan líftíma á meðan ríkisvíxlarnir eru gefnir út til styttri tíma en eins árs.

Meginmunur þessara þriggja flokka ríkisskuldabréfa er að íbúðabréfin eru verðtryggð og það eru greiddar tvær vaxtaafborganir af bréfunum á ári. Ríkisbréfin og ríkisvíxlarnir eru óverðtryggð og greiðir ríkissjóður eina vaxtaafborgun af bréfunum á hverju ári. Vextir bréfanna ákvarðast af markaðsaðstæðum þegar flokkurinn er gefinn út í fyrsta sinn.

Ávöxtunarkrafa skuldabréfa er sú krafa sem fjárfestir gerir til fjárfestingarinnar og sú ávöxtun sem hann fær á ári ef hann heldur bréfunum til gjalddaga.

Sá sem hyggst fjárfesta  í ríkisskuldabréfi  hefur ávöxtunarkröfu bréfanna til viðmiðunar þegar hann metur hvort bréfið sé vænlegur kostur í samanburði við aðrar fjárfestingarkosti. Fjölmargir áhrifaþættir hafa síðan áhrif á endanlega ákvörðunartöku eins og vaxtastig, verðbólga og vætingar til þróunnar þessara þátta.

Hagkvæm og örugg leið til þess að fjárfesta í ríkisskuldabréfum er að kaupa skírteini í ríkisskuldabréfasjóðum Landsbankans


Hvernig fara viðskipti fram?

  • Í gegnum síma. Fjármálaráðgjafar veita milligöngu um kaup og sölu verðbréfa í síma 410 4040. 
  • Í bankanum. Einfalt er að líta við hjá Verðbréfa- og lífeyrisráðgjöf í Austurstræti 11 eða í útibúum Landsbankans þar sem ráðgjafar aðstoða þig.
  • Í netbankanum. Boðið er upp á viðskipti með verðbréf í netbankanum.

Eftirfarandi þarf að vera til staðar

  • Skönnuð skilríki.
  • Innlánsreikningur, óbundinn.
  • Vörslureikningur.
  • Samþykki yfirlýsingar vegna verðbréfaviðskipta.

Nánari upplýsingar um verðbréfaviðskipti

Fyrirvarar um verðbréfaviðskipti


Allar upplýsingar sem eru birtar á þessari síðu eru samkvæmt bestu vitund Landsbankans og ætlaðar til fróðleiks, en ekki sem grundvöllur viðskipta. Landsbankinn ber ekki ábyrgð á hugsanlegum villum eða töfum upplýsinga og/eða ákvörðunum byggðum á þeim. Upplýsingar eru a.m.k. 15 mínútna gamlar.