Fjölbreytt úrval sjóða

Verðbréfasjóðir fjárfesta í dreifðu safni verðbréfa í þeim tilgangi að dreifa áhættu og draga úr sveiflum í ávöxtun. Þannig verður breyting á verðmæti fjárfestingarinnar ekki háð einum ákveðnum flokki verðbréfa. Sveiflur í ávöxtun sjóða aukast að jafnaði með hækkandi meðallíftíma.

Sumir sjóðir eru samsettir úr verðtryggðum og óverðtryggðum bréfum og eru því verðtryggðir að hluta. Verðtryggðir sjóðir eru þó alltaf lausir til útborgunar, ólíkt verðtryggðum sparireikningum.

Enginn munur er á kaup og sölugengi sjóða í reglubundinni áskrift. Hámarksfjárhæð í áskrift er 200.000 kr. á mánuði en áskriftarfjárhæð umfram þau mörk er samkvæmt samkomulagi við ráðgjafa.


Ríkisskuldabréf1

 

Reiðubréf ríkistryggð

  • Meðallíftími 0,3 ár*
  • Óverðtryggð
  • Safn stystu skuldabréfa og víxla með ábyrgð ríkisins

Sparibréf stutt

  • Meðallíftími 3,2 ár*
  • 20% verðtrygging
  • Safn stuttra verðbréfa með ábyrgð ríkisins

 

Sparibréf meðallöng

  • Meðallíftími 6,9 ár*
  • 50-60% verðtrygging
  • Dreift safn verðtryggðra og óverðtryggðra skuldabréfa með ábyrgð ríkisins

Sparibréf löng

  • Meðallíftími 8,6 ár*
  • 50-60% verðtrygging
  • Safn skuldabréfa með langan líftíma

 

Sparibréf óverðtryggð

  • Meðallíftími 6,2 ár*
  • Óverðtryggð
  • Safn óverðtryggðra skuldabréfa með ábyrgð ríkisins
  • Líftími getur verið breytilegur

Sparibréf verðtryggð

  • Meðallíftími 9,0 ár*
  • 100% verðtrygging
  • Safn verðtryggðra skuldabréfa með ábyrgð ríkisins
  • Líftími getur verið breytilegur

Hlutabréfasjóðir2

 

Úrvalsbréf

  • Úrval íslenskra hlutabréfa,
    skráð í Kauphöll Íslands.

Fleiri sjóðir

Rekstrarfélag sjóðanna er Landsvaki hf. og vörslufélag þeirra er Landsbankinn hf. Sjóðirnir eru starfræktir í samræmi við l. nr. 30/2003 og lúta eſtirliti Fjármálaeſtirlitsins. Áhætta fylgir ávallt fjárfestingu í sjóðum. Fjárfesting í fjárfestingarsjóði telst almennt áhættumeiri en fjárfesting í verðbréfasjóði. Nánari upplýsingar má finna í útboðslýsingum sjóða og útdráttum úr þeim á landsbankinn.is og á landsvaki.is. Fjárfestum er bent á að kynna sér vel útboðslýsingar sjóða áður en fjárfest er í þeim.

1. Verðbréfasjóðir 2. Fjárfestingasjóður * m.v. 1. febrúar 2011.