Almenn verðbréfaráðgjöf
Landsbankinn býður upp á úrval innlendra og erlendra verðbréfasjóða. Sjóðirnir eru hagkvæm leið fyrir þá sem vilja hámarka ávöxtun eigna sinna og dreifa áhættunni.
Lykillinn að góðum árangri í fjárfestingum er að gera sér skýra grein fyrir fjárfestingarmarkmiðum sínum, hafa greiðan aðgang að faglegri ráðgjöf og velja hentugar ávöxtunarleiðir.
Upplýsingar af mörkuðum
Á markaðasíðu okkar má sjá upplýsingar um viðskipti dagsins á íslenskum mörkuðum; þróun vísitalna, gjaldmiðlakrossa, breytingar á vísitölu neysluverðs og fleira.
Markaðir
Vantar þig ráðgjöf?
Ef þú vilt fara yfir núverandi stöðu þína, skoða fjárfestingamöguleika eða hefja sparnað getur þú komið og hitt fjármálaráðgjafa hjá Landsbankanum.
Móttaka Verðbréfa- og lífeyrissráðgjafar er staðsett við Hafnarstræti 10-12 á 2. hæð.
Þar taka ráðgjafar okkar á móti viðskiptavinum alla virka daga frá 9.15-16.00