Sjóðsstjórar Einkabankaþjónustu sjá um að stýra eignum viðskiptavina í samræmi við fyrir fram skilgreinda fjárfestingarstefnu. Í upphafi velur viðskiptavinur fjárfestingarstefnu í samráði við fjármálaráðgjafa Einkabankaþjónustu.
Við val á fjárfestingarstefnu er mikilvægt að setja sér raunhæf markmið um fjárfestingartíma og ávöxtun. Í ljósi þeirra markmiða er hægt að nálgast þá stefnu sem hentar best til að uppfylla væntingar um ávöxtun og áhættu.
Atriði sem hafa áhrif á hversu mikið safnið sveiflast í verðmæti eru meðal annarra líftími skuldabréfa og vægi hlutabréfa . Þessi atriði og mörg önnur mun ráðgjafi þinn fara gaumgæfilega yfir með þér við ákvörðun fjárfestingarstefnu.
Kostir virkrar eignastýringar:
- Áhættudreifing eigna
- Vöktun og stýring eignaflokka
- Lágmörkun viðskiptakostnaðar
- Aðgangur að eigin fjármálaráðgjafa
- Aðgengi að sérfræðiteymi Landsbankans