Stighækkandi ávöxtun eftir innstæðu
Vaxtareikningur er óverðtryggður sparireikningur með stighækkandi vöxtum eftir innistæðu. Reikningurinn er sveigjanlegur og hentar vel þeim sem vilja ávaxta fé sitt á góðum kjörum en þó vera lausir við langan binditíma. Hver innborgun er eingöngu bundin í 7 daga (innborgunardagur ekki meðtalinn), en eftir það er hún ávallt laus til útborgunar. Engin krafa er gerð um lágmarksinnistæðu – enn einn kostur fyrir þá sem kjósa sveigjanleika á góðum kjörum.
Vaxtareikningur ber stighækkandi vexti eftir innstæðu
| Þrep |
Upphæð |
Vextir gr. mánaðarlega |
Vextir gr. árlega |
| Grunnþrep |
0 - 199.999 |
2,33% |
2,35% |
| Fyrsta þrep |
200.000 - 999.999 |
2,33% |
2,35% |
| Annað þrep |
1.000.000 - 4.999.999 |
3,30% |
3,35% |
| Þriðja þrep |
5.000.000 - 19.999.999 |
3,59% |
3,65% |
| Fjórða þrep |
Yfir 20.000.000 |
4,17% |
4,25% |
Vaxtabreytingar geta orðið þrisvar í mánuði þ.e.a.s. 1., 11. og 21. hvers mánaðar.
Helstu kostir Vaxtareiknings
- Stighækkandi vextir eftir innistæðu (sjá töflu hér að ofan).
- Engin lágmarksinnistæða.
- Engin þjónustugjöld, innlausnargjöld eða aðrar þóknanir.
- Hvert innlegg er eingöngu bundið í 7 daga, innborgunardagur ekki meðtalinn (ef lagt er inn á mánudegi þá er upphæðin laus á þriðjudegi í vikunni þar á eftir).
- Val um að fá vexti greidda mánaðarlega eða um áramót.
Reikna sparnað