Verðtryggður sparnaður til lengri tíma
Landsbók er sniðin að þörfum viðskiptavina sem vilja einfalda og örugga leið til að binda fé sitt í ákveðinn tíma, en vilja jafnframt njóta ávöxtunar á háum vöxtum. Að binditíma loknum er hver innborgun laus í einn mánuð en binst síðan aftur í fimm mánuði. Með verðtryggingu er sparnaður tryggður gegn verðbólgu og reikningurinn býður þannig upp á stöðugleika í ávöxtun langtímasparnaðar.
Eiginleikar Landsbókar
- Verðtryggður reikningur.
- Bundinn í 36, 48 eða 60 mánuði.
- Engin þjónustugjöld, innlausnargjöld eða aðrar þóknanir.
- Hægt er að velja um hvort vextir eru greiddir út mánaðarlega eða árlega.
- Hentar vel fyrir reglubundinn langtímasparnað.
- Hentar þeim sem vilja tryggja sparnað sinn gagnvart verðbólgu.