Skilmálar vegna Vörðunnar

Við umsókn í Vörðuna samþykkir umsækjandi eftirfarandi reglur:

  • Vörðufélagi ábyrgist að allar upplýsingar eru gefnar eftir bestu vitund.
  • Rangar eða villandi upplýsingar kunna að valda því að Landsbankinn segi öllum þjónustuþáttum Vörðunnar upp fyrirvaralaust.
  • Skilyrði fyrir aðild að Vörðunni eru eftirfarandi:
    • Umsækjandi hafi launareikning sem er Einkareikningur eða sambærilegur reikningur hjá Landsbankanum.
    • Umsækjandi sé í góðum viðskiptum að mati Landsbankans og hafi ákveðna veltu á launareikningi sem Landsbankinn ákveður hverju sinni.
    • Vörðufélagi sé með debetkort og kreditkort samkvæmt ákvörðun Landsbankans, sem jafnframt er aðildarskírteini að Vörðunni. Um þessi greiðslukort gilda að öðru leyti þær reglur er fylgja hverjum kortasamningi fyrir sig.
    • Umsækjandi uppfylli skilyrði um þjónustuþætti eins og Landsbankinn ákveður hverju sinni.

Skilmálar sparireikninga


Við stofnun debetkortareiknings gilda reglur og skilmálar um debetkort.

Við stofnun VISA kreditkortareikninga gilda reglur og skilmálar um VISA kreditkort.

Við stofnun MasterCard kreditkortareikninga gilda reglur og skilmálar um Mastercard kreditkort.