Skilmálar sparireikninga (innlánsreikninga)

Almennir skilmálar

 Nr. 1501-04  |  Febrúar 2012

Stofnun

  • Við stofnun innlánsreikninga ber umsækjanda að sanna á sér deili með framvísun fullgildra persónuskilríkja, s.s. með vegabréfi, nafnskírteini eða ökuskírteini. Ef um lögaðila (fyrirtæki og félög) er að ræða, á þetta við um alla stjórnarmenn, framkvæmdastjóra og prókúruhafa.
  • Umsækjanda ber að fylla út spurningalista vegna laga um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.
  • Ekki er heimilt að stofna innlánsreikning fyrir annan fjárráða aðila nema hann veiti umboð til þess.
  • Fyrir utan lögráðamenn geta eingöngu nánustu skyldmenni, þ.e. afar, ömmur og systkini, stofnað innlánsreikning fyrir ófjárráða einstakling.
  • Landsbankanum er heimilt að synja umsókn um innlánsreikning.

Útborganir

  • Skilyrði fyrir úttekt af innlánsreikningi er að innstæða reikningsins sé laus og að viðkomandi hafi heimild til úttektar, viti leyninúmer og sýni fullgild persónuskilríki.
  • Aðeins reikningseigandi hefur heimild til úttektar af innlánsreikningi nema hann hafi veitt öðrum aðila umboð til úttektar eða lög kveða á um annað.

Ávöxtun

  • Innlánsreikningar geta verið verðtryggðir eða óverðtryggðir. Upplýsingar um binditíma verðtryggðra innlánsreikninga er að finna í skilmálum einstakra reikninga.
  • Vextir eru breytilegir samkvæmt vaxtaákvörðun Landsbankans eins og hún er á hverjum tíma.
  • Innborganir bera vexti frá og með innborgunardegi og að útborgunardegi, nema skilmálar einstakra reikninga kveði á um annað.
  • Vextir leggjast við höfuðstól um áramót og þegar innlánsreikningur er eyðilagður, nema skilmálar einstakra reikninga kveði á um annað.
  • Innborgaðir vextir eru alltaf lausir til útborgunar nema skilmálar einstakra reikninga kveði á um annað.
  • Ef innlánsreikningur er verðtryggður eru verðbætur færðar í lok hvers mánaðar og bindast eins og binditími reikningsins kveður á um.
  • Fjármagnstekjuskattur reiknast af innborguðum vöxtum og er skuldfærður af viðkomandi reikningi. Á verðtryggðum innlánsreikningum reiknast fjármagnstekjuskattur jafnframt af verðbótum.

Aðrir skilmálar


Fasteignagrunnur – óverðtryggður

Nr. 1502-03  |  Febrúar 2012

Stofnun

  • Óverðtryggður Fasteignagrunnur er ætlaður einstaklingum á aldrinum 15-35 ára sem vilja spara fyrir húsnæðiskaupum.
  • Skilyrði fyrir stofnun reikningsins er að gerður sé samningur um reglubundinn sparnað.
  • Ekki er hægt að leggja inn á reikninginn eftir að 35 ára aldri er náð.
  • Hver einstaklingur getur aðeins stofnað einn Fasteignagrunn.

Binditími

  • Óverðtryggður Fasteignagrunnur er bundinn að lágmarki í 12 mánuði frá fyrstu innborgun.
  • Ef reikningseigandi er ófjárráða er reikningurinn bundinn til 18 ára aldurs reikningseiganda, þó að lágmarki í 12 mánuði frá fyrstu innborgun.

Ávöxtun

  • Innborganir bera vexti frá innborgunardegi og að útborgunardegi (inn- og útborgunardagar bera ekki vexti).
  • Vextir leggjast við höfuðstól um áramót og við eyðileggingu eftir binditíma.
  • Áfallnir og bókaðir vextir eru ekki lausir til útborgunar fyrr en við útborgun.

Útborgun

  • Aðeins er hægt að taka einu sinni út af Fasteignagrunni. Við úttekt er öll innstæða reikningsins greidd út ásamt áunnum vöxtum að frádregnum fjármagnstekjuskatti og reikningnum lokað.

Aðrir skilmálar


Fasteignagrunnur – verðtryggður


Stofnun

  • Verðtryggður Fasteignagrunnur er ætlaður einstaklingum á aldrinum 15-35 ára sem vilja spara fyrir húsnæðiskaupum.
  • Skilyrði fyrir stofnun reikningsins er að gerður sé samningur um reglubundinn sparnað.
  • Ekki er hægt að leggja inn á reikninginn eftir að 38 ára aldri er náð.
  • Hver einstaklingur getur aðeins stofnað einn Fasteignagrunn.

Binditími

  • Verðtryggður Fasteignagrunnur er bundinn að lágmarki í 36 mánuði.
  • Eftir umsaminn binditíma er innstæðan laus í einn mánuð, binst eftir það í fimm mánuði, er síðan aftur laus í einn mánuð o.s.frv., sbr. reglur Seðlabanka Íslands um verðtryggingu sparifjár og lánsfjár nr. 492/2001.

Ávöxtun

  • Innborganir bera vexti frá innborgunardegi og að útborgunardegi (inn- og útborgunardagar bera ekki vexti).
  • Vextir leggjast við höfuðstól um áramót og við eyðileggingu eftir binditíma.
  • Áfallnir og bókaðir vextir eru ekki lausir til útborgunar fyrr en við útborgun.
  • Verðbætur eru færðar í lok hvers mánaðar og bindast eins og binditími reikningsins kveður á um.

Útborgun

  • Aðeins er hægt að taka einu sinni út af Fasteignagrunni. Við úttekt er öll innstæða reikningsins greidd út ásamt áunnum vöxtum að frádregnum fjármagnstekjuskatti, og reikningnum lokað.

Aðrir skilmálar


Fastvaxtareikningur

Nr. 1515-01  |  Febrúar 2012

Stofnun

  • Fastvaxtareikningur er ætlaður einstaklingum og lögaðilum.
  • Stofna þarf nýjan reikning fyrir hvert innlegg.
  • Lágmarksinnlegg á reikning er kr. 500.000.
  • Innlegg umfram kr. 100.000.000 er háð samþykki Landsbankans.
  • Skilyrði við stofnun er að innlegg sé lagt inn samdægurs.
  • Skilyrði við stofnun er að valinn sé reikningur til ráðstöfunar innstæðu við eyðileggingu, að loknum binditíma.
  • Fastvaxtareikningur og ráðstöfunarreikningur skulu vera á sömu kennitölu.

Binditími

  • Innstæða ásamt vöxtum er bundin í 3, 6, 12, 24, 36 eða 60 mánuði frá stofnun reiknings.

Ávöxtun

  • Fastvaxtareikningur er óverðtryggður innlánsreikningur
  • Innborganir bera vexti frá innborgunardegi og að útborgunardegi (inn- og útborgunardagar bera ekki vexti).
  • Vextir eru fastir út binditíma reikningsins.
  • Áfallnir og bókaðir vextir eru ekki lausir til útborgunar fyrr en að loknum binditíma.

Útborgun

  • Að loknum binditíma eyðileggst reikningurinn rafrænt.
  • Innstæða ásamt vöxtum að frádregnum fjármagnstekjuskatti, ráðstafast á þann reikning sem eigandi ákvað við stofnun.

Úttektargjald

  • Úttektargjald reiknast ef tekið er út af reikningi áður en binditíma er náð og fjárhæð er laus til útborgunar.
  • Úttektargjald er samkvæmt vaxtaákvörðun Landsbankans hverju sinni og dregst frá áunnum vöxtum.

Aðrir skilmálar


Framtíðargrunnur – óverðtryggður

Nr. 1503-04  |  Febrúar 2012

Stofnun

  • Óverðtryggður Framtíðargrunnur er ætlaður einstaklingum á aldrinum 0-18 ára.
  • Hægt er að stofna óverðtryggðan Framtíðargrunn fram til 18 ára aldurs.

Binditími

  • Allar innborganir á Framtíðargrunn eru bundnar til 18 ára aldurs reikningseiganda.
  • Öll innstæða losnar við upphaf þess mánaðar sem viðkomandi verður 18 ára.

Ávöxtun

  • Innborganir bera vexti frá innborgunardegi og að útborgunardegi (inn- og útborgunardagar bera ekki vexti).
  • Vextir leggjast við höfuðstól um áramót og við eyðileggingu eftir binditíma.
  • Áfallnir og bókaðir vextir eru ekki lausir til útborgunar fyrr en að loknum binditíma.

Aðrir skilmálar


Framtíðargrunnur – verðtryggður


Stofnun

  • Verðtryggður Framtíðargrunnur er ætlaður einstaklingum á aldrinum 0-18 ára.
  • Ekki er hægt að stofna verðtryggðan Framtíðargrunn á einstakling sem náð hefur 15 ára aldri vegna binditíma.

Binditími

  • Allar innborganir á verðtryggan Framtíðargrunn eru bundnar til 18 ára aldurs reikningseiganda.
  • Innborganir sem gerðar eru eftir að reikningseigandi hefur náð 15 ára aldri eru bundnar í 3 ár frá innborgunardegi, nema innborganir séu í samræmi við samning um reglubundinn sparnað.
  • Eftir 18 ára aldur er innstæðan laus í einn mánuð, binst eftir það í fimm mánuði, er síðan aftur laus í einn mánuð o.s.frv., sbr. reglur Seðlabanka Íslands um verðtryggingu sparifjár og lánsfjár nr. 492/2001.

Ávöxtun

  • Innborganir bera vexti frá innborgunardegi og að útborgunardegi (inn- og útborgunardagar bera ekki vexti).
  • Vextir leggjast við höfuðstól um áramót og við eyðileggingu eftir binditíma.
  • Áfallnir og bókaðir vextir eru ekki lausir til útborgunar fyrr en að loknum binditíma.
  • Verðbætur eru færðar í lok hvers mánaðar og bindast eins og binditími reikningsins kveður á um.

Aðrir skilmálar


Kjörbók

Nr. 1504-03  |  Febrúar 2012

Binditími

  • Innstæða á Kjörbók er alltaf laus til útborgunar.

Ávöxtun

  • Kjörbók er óverðtryggður innlánsreikningur.
  • Vextir eru lagðir við höfuðstól tvisvar á ári, um áramót og í lok júní ár hvert. 
  • Innborganir bera grunnvexti fyrstu 30 dagana eftir innborgun en þá færist óhreyfð innstæða á 1. þrep.
  • Vextir 1. þreps reiknast á allar innborganir sem ná 30-180 dögum en þá færist óhreyfð innstæða á 2. þrep.
  • Vextir 2. þreps reiknast á allar innborganir sem eru eldri en 6 mánaða.

Útborganir

  • Við útborgun er ávallt tekið af síðustu innborgun sem lögð var inn á reikninginn.

Aðrir skilmálar


Landsbók

Nr. 1505-04  |  Febrúar 2012

Binditími

  • Landsbók er hægt að binda í 36, 48 eða 60 mánuði.
  • Hver innborgun er bundin í umsaminn tíma frá innborgunardegi, nema gerður sé samningur um reglubundinn sparnað. Þá er öll innstæðan laus eftir umsaminn sparnaðartíma.
  • Eftir umsaminn sparnaðartíma er innstæðan laus í einn mánuð, binst eftir það í fimm mánuði, er síðan aftur laus í einn mánuð o.s.frv., sbr. reglur Seðlabanka Íslands um verðtryggingu sparifjár og lánsfjár nr. 492/2001.

Ávöxtun

  • Landsbók er verðtryggður innlánsreikningur.
  • Innborganir bera vexti frá innborgunardegi og að útborgunardegi (inn- og útborgunardagar bera ekki vexti).
  • Að vali reikningseiganda leggjast vextir við höfuðstól annað hvort um mánaðamót eða áramót, og við eyðileggingu reikningsins eftir binditíma.
  • Verðbætur eru færðar í lok hvers mánaðar og bindast eins og binditími reikningsins kveður á um.

Aðrir skilmálar


Sparireikningur 12

Nr. 1506-03  |  Febrúar 2012

Binditími

  • Hver innborgun er bundin í 12 mánuði frá innborgunardegi nema gerður sé samningur um reglubundinn sparnað. Þá er öll upphæðin laus eftir umsaminn sparnaðartíma.
  • Ef reglubundnum sparnaði er haldið áfram að loknum umsömdum binditíma, bindast nýjar innborganir í 12 mánuði á sama hátt og við stofnun reikningsins.

Ávöxtun

  • Sparireikningur 12 er óverðtryggður innlánsreikningur.
  • Innborganir bera vexti frá innborgunardegi og að útborgunardegi (inn- og útborgunardagar bera ekki vexti).

Aðrir skilmálar


Sparireikningur 24

Nr. 1510-02  |  Febrúar 2012

Binditími

  • Hver innborgun er bundin í 24 mánuði frá innborgunardegi nema í gildi sé samningur um reglubundinn sparnað. Þá er öll upphæðin laus eftir umsaminn sparnaðartíma.
  • Ef reglubundnum sparnaði er haldið áfram að loknum umsömdum binditíma, bindast nýjar innborganir í 24 mánuði á sama hátt og við stofnun reikningsins.

Ávöxtun

  • Sparireikningur 24 er óverðtryggður innlánsreikningur.
  • Innborganir bera vexti frá innborgunardegi og að útborgunardegi (inn- og útborgunardagar bera ekki vexti).

Úttektargjald

  • Úttektargjald reiknast ef tekið er út af Sparireikningi 24 áður en fjárhæð er laus til útborgunar. Úttektargjald er samkvæmt vaxtaákvörðun Landsbankans hverju sinni og dregst frá áunnum vöxtum.

Aðrir skilmálar


Sparireikningur RS

Nr. 1507-02  |  Febrúar 2012

Stofnun

  • Skilyrði stofnunar reikningsins er að gerður sé samningur um reglubundinn sparnað.

Binditími

  • Reikningurinn er bundinn í 3 mánuði frá fyrstu innborgun.
  • Öll innstæðan losnar eftir þrjá mánuði og er alltaf laus eftir það.
  • Ef reglubundnum sparnaði er haldið áfram að loknum upphaflegum binditíma, bindast nýjar innborganir í 3 mánuði á sama hátt og við stofnun reikningsins.

Ávöxtun

  • Innborganir bera vexti frá innborgunardegi og að útborgunardegi (inn- og útborgunardagar bera ekki vexti).

Aðrir skilmálar


Vaxtareikningur

Nr. 1508-03  |  Febrúar 2012

Binditími

  • Hver innborgun er bundin í 7 daga frá innborgunardegi.
  • Eftir 7 daga bindingu er innborgunin laus og binst ekki aftur.

Ávöxtun

  • Vaxtareikningur ber vexti eftir innstæðu samkvæmt vaxtaákvörðun Landsbankans eins og hún er á hverjum tíma.
  • Innborganir bera vexti frá innborgunardegi og að útborgunardegi (inn- og útborgunardagar bera ekki vexti).
  • Að vali reikningseiganda leggjast vextir við höfuðstól annað hvort um mánaðamót eða áramót og við eyðileggingu reikningsins.

Aðrir skilmálar


Vaxtareikningur Varðan 60

Nr. 1509-03  |  Febrúar 2012

Stofnun

  • Vaxtareikningur Varðan 60 er ætlaður fyrir Vörðufélaga 60 ára og eldri.

Binditími

  • Innborgun á Vaxtareikning Varðan 60 er óbundin.

Ávöxtun

  • Vaxtareikningur Varðan 60 ber vexti eftir innstæðu samkvæmt vaxtaákvörðun Landsbankans eins og hún er á hverjum tíma .
  • Innborganir bera vexti frá innborgunardegi og að útborgunardegi (inn- og útborgunardagar bera ekki vexti).
  • Að vali reikningseiganda leggjast vextir við höfuðstól annað hvort um mánaðamót eða áramót og við eyðileggingu reikningsins.

Aðrir skilmálar


VSK reikningur

Nr. 1521-01  |  Febrúar 2012

Almennt

  • VSK reikningur er ætlaður greiðendum virðisaukaskatts, fyrirtækjum og einstaklingum í atvinnurekstri.

Binditími

  • Hver innborgun er bundin í sjö daga í kringum gjalddaga virðisaukaskatts, þrjá daga fyrir og þrjá daga eftir gjalddaga.
  • Gjalddagar virðisaukaskatts eru einum mánuði og fimm dögum eftir lok síðasta uppgjörstímabils, þ.e. 5. febrúar, 5. apríl, 5. júní, 5. ágúst, 5. október og 5. desember.
  • Miðað er við almennt virðisaukaskattstímabil.

Ávöxtun

  • VSK reikningur er óverðtryggður innlánsreikningur.
  • Innborganir bera vexti frá innborgunardegi og að útborgunardegi (inn- og útborgunardagar bera ekki vexti).

Aðrir skilmálar


Skilmálar innlánsreikninga (PDF útgáfa)