1. gr. - Skilyrði lánveitingar
Umsækjandi skal vera í skilum við NBI hf., hér eftir nefnt Landsbankinn, ekki á vanskilaskrá og standast greiðslumat Landsbankans. Skilyrði lánveitingar er að veitt verði fasteignaveð á 1. veðr. sbr. 2. gr. skilmála þessara.
2. gr. - Fasteignaveð
Íbúðalán Landsbankans eru eingöngu lánuð gegn 1. veðrétti í fasteign á virku markaðssvæði skv. útlánareglum Landsbankans hverju sinni. Lánað er allt að 80% af markaðsverði fasteignar, en þó aldrei hærra en sem nemur brunabótamati fasteignar. Reynist brunabótamat lægra en sem nemur 80% af áætluðu markaðsverði skal lántaka heimilt að taka viðbótarbrunatryggingu.
3. gr. - Lánsfjárhæð
Lágmarksfjárhæð Íbúðalána Landsbankans er kr. 2.000.000 en ekkert hámark, enda er skilyrðum skilmála þessara um veðsetningu uppfyllt.
4. gr. - Lánstími
Lánstími Íbúðalána Landsbankans er 25 eða 40 ár frá og með 15.09.2004. Lokagjalddagi 25 ára lána er því þann 15.09.2029 og 40 ára lána þann 15.09.2044, óháð því hvenær lán er tekið. Gjalddagar lánsins eru 15. hvers mánaðar.
5. gr. - Uppgreiðsla láns
Heimilt er að greiða inn á Íbúðalán Landsbankans á lánstíma, þ.e. að greiða lánið hraðar, gegn greiðslu eftirtalinnar uppgreiðsluþóknunar, sem reiknast þá af innborgaðri fjárhæð hverju sinni:
- lán með föstum vöxtum; uppgreiðslugjald reiknast skv. gjaldskrá Landsbankans eins og hún er á hverjum tíma, nú 2%. Við ákvörðun uppgreiðslugjalds er m.a. tekið tillit til þess mismunar sem er á vaxtastigi lánsins á uppgreiðsludegi og markaðsvöxtum sambærilegra nýrra lána hjá Landsbankanum á uppgreiðsludegi miðað við uppreiknaðar eftirstöðvar lánsins, núvirt frá uppgreiðsludegi til lokagjalddaga.
- lán með endurskoðun vaxta á 5 ára fresti; uppgreiðslugjald reiknast skv. gjaldskrá Landsbankans eins og hún er á hverjum tíma að hámarki 2%.
Umsækjanda skal einnig heimilt að greiða lánið upp að fullu á gjalddögum lánsins fyrir umsamdan lokagjalddaga gegn greiðslu framangreindrar uppgreiðsluþóknunar.
6. gr. - Útgreiðsla láns
Samþykki Landsbanknn umsókn umsækjanda skal fjárhæð lánsins greidd út að frádregnum kostnaði innan 7 bankadaga frá móttöku undirritaðrar umsóknar, enda liggi öll áskilin gögn umsækjanda fyrir og skuldabréfi hafi verið þinglýst athugasemdalaust.
7. gr. - Vextir
Vextir af Íbúðalánum Landsbankans eru skv. vaxtatöflu Landsbankans eins og hún er á hverjum tíma, verðtryggðir með vísitölu neysluverðs útgefinni af Hagstofu Íslands.
Vaxtaafsláttur
Hafi umsækjandi virkan launareikning hjá Landsbankanum og þrjá af eftirtöldum þjónustuþáttum bankans; greiðsludreifingu, kreditkort, lífeyrissparnað og líf- eða sjúkdómatryggingu, nýtur umsækjandi vaxtaafsláttar sem nemur 0,9% og ber lánið þá 4,15% árlega vexti. Skilvísir Vörðufélagar og viðskiptavinir með Launavernd njóta sömu kjara. Uppfylli umsækjandi ekki lengur framangreind skilyrði skal vaxtaafsláttur skv. grein þessari falla niður.
Endurskoðun vaxta
Hafi umsækjandi valið lán með endurskoðunarákvæði vaxta skal Landsbankans heimilt að endurskoða vexti Íbúðalána Landsbankans á 5 ára fresti, í fyrsta skipti þann 15.09.2009. Umsækjandi gerir sér grein fyrir að vextir kunna bæði að geta lækkað sem og hækkað.
Komi til þess að veðskuldabréfi útgefnu á grundvelli umsóknar þessarar um Íbúðalán fáist ekki þinglýst á 1. veðrétt fasteignar, sbr. 2. gr. skilmála þessara, skulu vextir veðskuldabréfsins hækka og vera í samræmi við almenn vaxtakjör Fasteignalána Landsbankans á hverjum tíma að teknu tilliti til veðsetningarhlutfalls fasteignar.
8. gr. - Kostnaður
Innheimtur
Umsækjandi skal greiða kostnað við greiðslur og innheimtu skv. gjaldskrá Landsbankans eins og hún er á hverjum tíma. Komi til vanskila skal umsækjandi greiða vanskilagjald og kostnað við lögfræðilega innheimtu til innheimtuaðila skv. gjaldskrá eins og hún er á hverjum tíma.
Lántökukostnaður
Umsækjandi skal við útgreiðslu lánsins greiða til Landsbankans lántökukostnað sem nemur 1% af lánsfjárhæð og kostnað við gerð skuldabréfs skv. gjaldskrá Landsbankans eins og hún er á hverjum tíma. Þá skal umsækjandi greiða annan útlagðan kostnað sem til kann að falla vegna frágangs skuldabréfsins. Landsbankanum skal heimilt að halda eftir greiðslu vegna framangreinds kostnaðar við útborgun lánsins.
Stimpil- og þinglýsingargjald
Umsækjandi skal standa skil á gjöldum til sýslumanns vegna stimpil- og þinglýsingargjalda. Kostnaður við þinglýsingu er nú að fjárhæð kr. 1.200 og nemur stimpilgjald 1,5% af lánsfjárhæð.
Frágangsgjald
Umsækjandi skal greiða við lokagreiðslu lánsins frágangsgjald skv. gjaldskrá Landsbankans eins og hún er á hverjum tíma.