Í láni af þessari gerð er höfuðstóllinn allur í erlendum gjaldeyri, samsettur úr nokkrum erlendum myntum, og vextir eru breytilegir, byggðir á alþjóðlega stöðluðum millibankavöxtum (LIBOR-vöxtum) að viðbættu vegnu meðalálagi sem fer eftir veðsetningu.
LIBOR-vextir breytast daglega, en grunnvextir þessa láns á hverju vaxtatímabili eru meðaltal LIBOR-vaxta yfir síðustu þrjá mánuði fyrir upphaf þess vaxtatímabils. Hvert vaxtatímabil er þrír mánuðir að lengd. Ef greitt er mánaðarlega breytast því vextirnir við þriðja hvern gjalddaga; ef greitt er þriðja hvern mánuð breytast þeir í hvert sinn.
Athugið að þessi tegund láns er „gengistryggð“: eftirstöðvarnar eru taldar í erlendri mynt, og því geta stórar gengissveiflur haft veruleg áhrif á lánsbyrðina. Erfitt er að sjá slíkar sveiflur fyrir langt fram í tímann, og því fylgir svona láni í eðli sínu meiri áhætta en innlendum lánum.
Í láni af þessari gerð er hluti höfuðstólsins í erlendum gjaldeyri, samsettur úr nokkrum erlendum myntum, en afgangurinn er í íslenskum krónum. Sá hluti sem er í íslenskum krónum er verðtryggður miðað við neysluvísitölu, svo að verðbætur reiknast á þann hluta eftirstöðvanna á hverjum gjalddaga. Sá hluti sem er í erlendum myntum sætir breytilegum vöxtum (sjá „Fasteignalán í erlendum myntum“).
Í láni af þessari gerð er allur höfuðstóllinn í íslenskum krónum og lánið er verðtryggt miðað við neysluvísitölu.
Vörðufélagi
Ef lántaki er félagi í Vörðunni, þá lækkar lántökugjald úr 1 % í 1,7 %.
Líftrygging
Ef lántaki kýs að kaupa einnig líftryggingu samfara lántökunni, þá lækkar lántökugjald úr 1 % í 1,7 %.
Greiðslur skuldfærðar
Ef merkt er við þennan valkost greiðist rétt upphæð sjálfkrafa af viðskiptareikningi á hverjum gjalddaga. Við það lækkar greiðslugjaldið (kostnaður á hvern gjalddaga) úr 595 kr. í 195 kr.
Jafngreiðslulán (annuitet)
Með jöfnum afborgunum er sama upphæð greidd af höfuðstól við hvern gjalddaga auk vaxta. Greiðslubyrði er hærri í upphafi og minnkar þegar líður á lánstímann en sveiflast þó með vaxtastigi og eignamyndun er því hraðari. Með breytilegum jafngreiðslum greiðist lægri upphæð af höfuðstól í upphafi. Greiðslubyrði er jafnari út lánstímann en sveiflast þó með vaxtastigi og eignamyndun því hægari.
Verðtryggt
Stimpilgjald er gjald sem skv. lögum þarf að greiða til ríkissjóðs við útgáfu veðskuldabréfs. Það nemur 1,5% af höfuðstóli lánsins.
Fyrir stofnun láns taka lánastofnanir almennt lántökugjald, sem er ákveðið hlutfall af lánsfjárhæðinni.
Lántökugjald Framkvæmdaláns Landsbankans er 2% af lánsfjárhæð, en lækkar í 1% ef lántaki er félagi í Vörðunni.
Gjald fyrir þá vinnu að útbúa skuldabréf fyrir lánið nemur 2800 kr.
Á hverja greiðslu af láninu leggst fastur kostnaður, sem nemur 640 kr. ef lánið er að hluta eða að öllu leyti í erlendri mynt, en er 150 kr. fyrir lán í íslenskum krónum ef valið er að skuldfæra hverja greiðslu sjálfkrafa af viðskiptareikningi (en 450 kr. ef greiðslur eru ekki skuldfærðar).
Fyrsti vaxtadagur
Fyrsti vaxtadagur er upphafsdagur lánstímans, dagurinn þegar lántaki fær andvirði lánsins afhent.
Fyrsti gjalddagi
Fyrsti gjalddagi er almennt mánuði eftir fyrsta vaxtadag, en stundum er samið um annað. Hér má stilla fyrsta gjalddaga til að reikna með. Hann verður þó alltaf að vera síðar en fyrsti vaxtadagur.
Lánstími
Lánstíminn er tíminn frá fyrsta vaxtadegi til síðasta gjalddaga, í mánuðum talið.
mánuðir
Þar af afborgunarlaust í
Hægt er að haga lánagreiðslum þannig að í fyrstu séu ekki greiddar neinar afborganir á gjalddögum, heldur aðeins vextir og greiðslugjald. Slíkir gjalddagar nefnast vaxtagjalddagar.
Ef vaxtagjalddagar eru notaðir, þá dreifist greiðsla höfuðstóls á þá venjulegu gjalddaga sem eftir eru. Afborganir af höfuðstóli verða því hærri á hverjum venjulegum gjalddaga, til að bæta það upp að ekkert var borgað af höfuðstólnum í fyrstu.
Þar af greiðslulaust í
Hægt er að haga lánagreiðslum þannig að í fyrstu séu ekki greiddar neinar greiðslur, hvorki afborganir né vextir. Slíkt tímabil í upphafi lánstímans nefnist greiðslulaust tímabil; það má vera 0, 12, eða 24 mánuðir að lengd.
Þeir vextir sem hefðu átt að greiðast á þessum niðurfelldu gjalddögum leggjast þess í stað á eftirstöðvarnar fyrir þær greiðslur sem eftir eru.
Greiðslur verða á
Algengast er að greiðslur af láni fari fram mánaðarlega. Hægt er að hafa fleiri en einn mánuð á milli greiðslna, en bilið hleypur alltaf á heilum mánuðum. Lánstíminn er þetta bil, margfaldað með fjölda gjalddaga:
Lánstími = Greiðslubil × Fjöldi gjalddaga
1 eða
3 mánaða fresti
Eftirstöðvar áhvílandi lána
Ef önnur lán eru þegar áhvílandi á fasteigninni, þá hefur sú veðsetning áhrif á vaxtaálagið sem leggst ofan á grunnvextina fyrir þetta nýja lán.
Eftirstöðvar áhvílandi lánanna, ásamt verðmæti eignarinnar, ákvarða veðsetningarhlutfallið fyrir þessa nýju lántöku. Höfuðstóll nýja lánsins ákvarðar síðan veðsetningarhlutfallið eftir lántökuna. Loks ákvarðast vaxtaálagið af þessum tveimur veðsetningarhlutföllum og skilgreindu vaxtaálagi fyrir hvert veðsetningarbil.
kr.
Andvirði
Andvirði láns er sú upphæð sem látin er lántaka í té í upphafi lánstímans. Andvirðið nemur lánsfjárhæðinni að frádregnum upphafskostnaði lánsins, þ.e. stimpilgjaldi, lántökugjaldi og skuldabréfsgjaldi.
Lánsfjárhæð
Fjárhæð láns er höfuðstóll þess í heild, að meðtöldum upphafskostnaði þess (stimpilgjaldi, lántökugjaldi og skuldabréfsgjaldi).
Markaðsverð fasteignar
Þetta er umsamið kaupverð, eða markaðsverð metið af löggiltum fasteignasala.
Þetta verð er notað til að ákvarða veðsetningarhlutföll út frá eftirstöðvum áhvílandi lána og höfuðstóli nýja lánsins.
Hámarksveðsetning
Framkvæmdalán er veitt gegn veði í fasteign, upp að ákveðnu hámarksveðsetningarhlutfalli. Þetta hámark er 70% ef afborgunum og greiðslum er ekki frestað, en lækkar ef fresta skal afborgunum eða greiðslum. Lægst fer hlutfallið í 54,3% þegar greiðslum er frestað í 2 ár og afborgunum í 7 ár.
%
Veðsetningarhlutfall
Hér birtist veðsetningarhlutfall eignarinnar eftir lántökuna. Þetta hlutfall er:
veðsetning = (áhv + lánsupphæð) / markaðsverð
Vextir lánsins fara eftir þessu hlutfalli, og veðsetningarhlutfallinu sem hvíldi á eigninni fyrir lántökuna.
Vextir á ári
Ársvextir láns (í prósentum), þ.e. nafnvextir, tákna hversu mikla vexti (í krónum) þyrfti að borga af höfuðstólnum á einu ári, ef hann breyttist ekkert yfir árið:
Vaxtagreiðsla á ári = Höfuðstóll × Ársvextir
eða á mánaðarlegum gjalddögum:
Vaxtagreiðsla á mánuði = Höfuðstóll × Ársvextir / 12
Vextir almenns fasteignaláns fara eftir veðsetningu. Ef upphæð lánsins (eða annarra lána sem eru á undan í veðrétti) er stór hluti af markaðsverði veðfasteignarinnar, þá hækkar það vexti lánsins.
Verðbólguspá
Í verðtryggðu láni fara greiðslurnar eftir efnahagsþróun, og ekki er hægt að vita hana fyrir. Lánareiknirinn gerir því ráð fyrir tiltekinni verðbólguprósentu („verðbólguspá“) til að spá fyrir um verðbæturnar. Hér má stilla verðbólguspána; sjálfgefna gildið 0% er aðeins gefið sem dæmi.
Landsbankinn hf. Austurstræti 11, 155 Reykjavík, Kt. 471008-0280
Swift: NBIIISRE Reglur Lagalegur fyrirvari Umboðsmaður viðskiptavina Veftré