Raunveruleikurinn skólaárið 2011-2012
Raunveruleikurinn verður spilaður í 9. og 10. bekk skólaárið 2011-2012 eins og síðasta skólaár. Leikurinn verður spilaður í 10. bekk á haustönn en á vorönn í 9. bekk.
Á síðasta ári var efni Raunveruleiksins endurbætt og leiknum skipt upp þannig að í 9. bekk setja nemendur sig í spor tvítugra ungmenna sem eru nýútskrifuð úr framhaldsskóla. Í 10. bekk verður viðfangsefni þátttakenda tímabil þar sem þeir koma yfir sig þaki og eignast fjölskyldu.
Um Raunveruleikinn
Raunveruleikurinn er gagnvirkur hermileikur, hannaður sem fjármála- og neytendafræðsla í efsta bekk Grunnskóla. Með Raunveruleiknum eiga nemendur að fá innsýn í þær ákvarðanir sem venjulegur þjóðfélagsþegn þarf að taka á lífshlaupi sínu og hvaða tækifærum og hindrunum sem hann stendur frammi fyrir í lífunu.
Raunveruleikur er keppni og er spilaður í fjórar vikur. Þátttakendur verða að skrá sig inn alla virka daga og vinna verkefni. Meðan á leiknum stendur þurfa þátttakendur að taka fjölda ákvarðana, lesa örlög sín, fylgjast með fréttum, athuga með atvinnu og bregðast við öllu því sem á daga þeirra drífur.