Umsóknarfrestur fyrir tímabundna úttekt viðbótarlífeyrissparnaðar hefur verið framlengdur. Lögin voru samþykkt á Alþingi þann 17. desember 2011 og tóku gildi 1. janúar 2012.
Á tímabilinu 1. janúar 2012 til 30. september 2012 verður heimilt á nýjan leik að óska eftir fyrirframgreiðslu viðbótarlífeyrissparnaðar. Hámarksúttekt verður áfram 6.250.000 kr. sem greiðist með mánaðarlegum greiðslum að hámarki 416.667 kr. í allt að 15 mánuði. Ef úttekt er lægri en 6.250.000 kr. styttist útgreiðslutími hlutfallslega. Sú fjárhæð sem viðskiptavinur hefur nú þegar tekið út eða er í útgreiðsluferli mun dragast frá hámarksupphæðinni sem laus er til útgreiðslu. Tekjuskattur er greiddur af úttektarupphæðinni.
Já, launaseðlar verða aðgengilegir í netbönkum. Einnig er hægt að óska eftir því sérstaklega að fá launaseðla senda í pósti.
Í slíkum tilfellum styttist greiðslutíminn hlutfallslega. Dæmi: Upphæð útgreiðslu er 1.000.000 kr. Rétthafi fær þetta úttgreitt á þremur mánuðum eða 416.667 kr fyrstu tvo mánuðina og 166.666 í þriðja og síðasta útgreiðslumánuði. Upphæð útgreiðslu er 3.000.000 kr. Í þessu tilfelli fær rétthafi þessa fjárhæð greidda á 8 mánuðum. Mánaðarleg útgreiðsla verður 416.667 kr. á mánuði fyrir skatt í 7 mánuði og eftirstöðvar, 83.331 kr., eru greiddar út í 8 mánuðinum. Athugið að greiða þarf tekjuskatt af upphæðinni
Útgreiðsla viðbótarlífeyrissparnaðar hefur ekki áhrif á bætur samkvæmt lögum um almannatryggingar og lögum um félagslega aðstoð. Þá hefur útgreiðslan ekki áhrif á greiðslu húsaleigubóta, greiðslu barnabóta eða vaxtabóta og atvinnuleysisbóta.
Já, það er hægt. Segja þarf upp umsókn um útgreiðslu í útibúi Landsbankans sem tilkynnir það til ríkisskattstjóra, en embættið hefur eftirlit með útgreiðslu viðbótarlífeyrissparnaðar.
Já, útgreiðslan hefur engin áhrif á innborganir í sjóðinn. Það er þó ekki heimilt að taka út viðbótarlífeyrissparnað sem greiddur er inn í sjóðinn eftir 31. desember 2011.
Nei, ekki verður tekin þóknun af tímabundnum úttektum viðbótarlífeyrissparnaðar.
Inneign er reiknuð við gildistöku laganna þann 1. janúar 2012. Greiðslur sem berast í sjóði eftir þann tíma er ekki hægt að greiða út í fyrirframgreiðslu.
Ríkisskattstjóri hefur hækkað tekjuskattprósentu og tekjuviðmið. Allar útgreiðslu miðast við þessi breyttu skattalög. - Skattþrep 1 (37,34%) tekjuskattur á tekjur undir 230.000 kr. - Skattþrep 2 (40,24%) tekjuskattur á tekjur frá 230.000 kr. til 704.367 kr. - Skattþrep 3 (46,24%) tekjuskattur á tekjur yfir 704.367 kr. Þetta tók gildi nú um áramótin.
Umsókn í Einkabanka
Reiknaðu dæmið
Fá ráðgjöf
Landsbankinn hf. Austurstræti 11, 155 Reykjavík, Kt. 471008-0280
Swift: NBIIISRE Reglur Lagalegur fyrirvari Umboðsmaður viðskiptavina Veftré