Launþegi getur greitt að hámarki 2% eigið framlag af óskattlögðum tekjum. Mótframlag launagreiðanda fer eftir kjarasamningum, er allt að 2% og miðast við 2% framlag launþega. Óski launþegi eftir að greiða áfram 4% til viðbótarlífeyrissparnaðar mánaðarlega verður hann að gera það með skriflegum hætti. Þessi auka 2% verða þó ekki greidd inní sjóðinn nema af skattlögðum launum og gæti launþegi því átt hættu á að lenda í tvískattlagningu á endanum.
Með breytingum á lögum um lífeyrissparnað, sem tóku gildi í lok árs 2008, voru gerðar breytingar á útgreiðslu viðbótarlífeyrissparnaðar. Viðbótarlífeyrissparnaður er laus til útborgunar í eingreiðslu við 60 ára aldur. Úttekt vegna viðbótarlífeyrissparnaðar getur þó ekki hafist fyrr en tveimur árum eftir fyrstu greiðslu iðgjalds.
Viðbótarlífeyrissparnaður er frádráttarbær frá skattskyldum tekjum við innborgun, en greiddur er af honum tekjuskattur við útborgun. Iðgjöldum er því skilað óskattlögðum í séreignarsparnað, en þegar að útborgun kemur er sparnaðurinn skattlagður eins og hver önnur laun. Þetta þýðir að greiðslu á tekjuskatti er frestað þangað til útborgun hefst og getur launþeginn þá mögulega hagnast með tvennu móti. Annars vegar ef launþeginn á ónýttan persónuafslátt þegar inneignin er tekin út eða ef tekjuskattur hefur lækkað þegar að úttekt kemur.
Ekki er greiddur fjármagnstekjuskattur vegna þeirra vaxtatekna sem launþeginn ávinnur sér á sparnaðartímanum, né eignarskattur af uppsafnaðari eign. Við fráfall er sparnaðurinn greiddur til erfingja og ekki er greiddur erfðafjárskattur. Ekki er greiddur eignarskattur af inneign af viðbótarlífeyrissparnaði.
Ef orkutap er metið 100% getur viðkomandi fengið alla innstæðuna greidda á sjö árum. Árleg útborgun lækkar og úttektartími lengist í hlutfalli við lækkun örorkuprósentu.
Nei, það er valfrjálst hvert viðbótarlífeyrissparnaðurinn er greiddur og taka bæði fjármálafyrirtæki og lífeyrissjóðir við viðbótarlífeyrissparnaði.
Nei, slíkt er ekki heimilt. Viðbótarlífeyrissparnaður er ekki aðfararhæfur.
Spurningar og svör um tímabundna úttekt á viðbótarlífeyrissparnaði
Landsbankinn hf. Austurstræti 11, 155 Reykjavík, Kt. 471008-0280
Swift: NBIIISRE Reglur Lagalegur fyrirvari Umboðsmaður viðskiptavina Veftré