Skilmálar

Úr samþykktum Íslenska lífeyrissjóðsins

  1. Almennt

    Íslenski lífeyrissjóðurinn starfrækir séreignardeild og samtryggingardeild. Deildirnar eru fjárhagslega aðskildar. Báðar deildirnar lúta sömu stjórn. Útborgun og öflun réttinda lúta ákvæðum II. og III. kafla l. skv. lögum nr. 129/1997.

    Viðbótarlífeyrissparnaður

  2. Greiðsla iðgjalds

    Rétthafi skal gera samning um lífeyrissparnað við Íslenska lífeyrissjóðinn og er iðgjald rétthafa séreign hans.

    Iðgjaldið ber að greiða mánaðarlega og skulu greiðslur hefjast eigi síðar en tveimur mánuðum frá undirritun samnings um lífeyrissparnað. Iðgjaldagreiðslutímabil skal eigi vera lengra en mánuður og skal gjalddagi vera tíundi næsta mánaðar, sbr. 2. mgr. 7. gr. laga nr. 129/1997. Rétthafa ber að tilkynna vörsluaðila um þann aðila (launagreiðanda) er greiðir iðgjald hans á hverjum tíma.

    Allar breytingar á hlutfalli greidds iðgjalds skal rétthafi tilkynna skriflega til Íslenska lífeyrissjóðsins. Íslenski lífeyrissjóðurinn ber ekki ábyrgð gagnvart rétthafa, maka hans, erfingjum eða öðrum á því að iðgjald berist frá launagreiðanda.

  3. Ávöxtun iðgjalds

    Íslenski lífeyrissjóðurinn ávaxtar iðgjald rétthafa í samræmi við ákvæði samnings aðila um lífeyrissparnað eða viðauka við samninginn.

    Rétthafa er sent yfirlit um stöðu inneignar í lok hvers almanaksárs. Rétthafi getur óskað eftir að yfirlit berist oftar á eigin kostnað.

  4. Útborgun

    Rétthafi getur hafið úttekt á lífeyrissparnaði ásamt vöxtum samkvæmt samningi þessum eða gert sérstakan útborgunarsamning við Íslenska lífeyrissjóðinn, sbr. 5. gr. samnings þessa, tveimur árum eftir að fyrsta greiðsla iðgjalds hefur borist.

    Útborgun getur þó ekki hafist fyrr en rétthafi hefur uppfyllt skilyrði 11. gr. reglugerðar nr. 698/1998, en þau eru eftirfarandi:

    • Rétthafi verður að hafa náð 60 ári aldri og er þá heimilt að hefja úttekt sparnaðarins ásamt vöxtum með jöfnun árlegum greiðslum.
    • Verði rétthafi öryrki og orkutapið, sem hann verður fyrir, er 100 % á hann rétt á að fá lífeyrissparnað og vexti greidda út með jöfnum árlegum greiðslum á sjö árum. Árleg útborgun lækkar og úttektartími lengist í hlutfalli við lækkun örorkuprósentu.
    • Við andlát rétthafa öðlast erfingjar rétt til inneignar hins látna hjá Íslenska lífeyrissjóðnum og skiptist hún milli þeirra eftir reglum erfðalaga. Láti rétthafi ekki eftir sig börn eða maka skal inneign renna til dánarbús rétthafa án takmarkana samkvæmt 2. ml. 2. mgr. 8. gr. laga nr. 129/1997.
    • Sé innstæða undir 500.000 kr. greiðir Íslenski lífeyrissjóðurinn inneignina út í einu lagi, óski rétthafi þess. Þessi viðmiðunarfjárhæð skal breytast árlega í hlutfalli við breytingu á vísitölu neysluverðs miðað við grunnvísitölu 173,5 stig.

      Með jöfnum greiðslum hér að ofan er átt við jafnar greiðslur að tiltölu við fjölda greiðsluára þannig að rétthafi (eða þeir sem leiða rétt sinn frá honum) fái á hverju ári þann hluta af inneigninni, að meðtöldum tekjum vegna hennar, sem samsvara tölu þeirra ára er eftir standa af endurgreiðslutímanum.

      Við útgreiðslu á bundinni séreign rétthafa, sem greiðir lágmarkstryggingaverndina í aðra samtryggingardeild en Íslenska lífeyrissjóðinn, gilda sömu reglur og gilda myndu um séreignahlutann í þeim lífeyrissjóði sem sjóðfélaginn greiðir samtryggingarhluta lágmarksiðgjaldsins til.
  5. Sérstakur útborgunarsamningur

    Þrátt fyrir ákvæði 4. gr. um jafnar greiðslur er rétthafa og Íslenska lífeyrissjóðnum heimilt að gera sérstakan samning um mánaðarlega útborgun tiltekinnar krónutölu sem fylgir vísitölu neysluverðs. Slíkur samningur getur að hluta eða öllu leyti verið til ákveðins tíma, sbr. 11. gr. laga nr. 129/1997 um lágmarkstíma. Rétthafi skal tilkynna Íslenska lífeyrissjóðnum skriflega hyggist hann gera slíkan samning með a.m.k. eins mánaðar fyrirvara áður en útborgun hefst.

  6. Ráðstöfunarréttur

    Rétthafa er heimilt að ráðstafa innstæðu sinni og flytja réttindi sín til annars viðurkennds vörsluaðila. Kostnaður vegna flutnings nemur 1% af innstæðu rétthafa. Enginn kostnaður er vegna flutnings innan Íslenska lífeyrissjóðsins.

  7. Uppsögn

    Uppsögn skal vera skrifleg og send afgreiðslustað vörsluaðila. Uppsögn veitir ekki rétt til útborgunar innstæðu eða réttinda, en rétthafi hefur heimild til ráðstöfunar í samræmi við lið 6. Samningi um viðbótarlífeyrissparnað má segja upp með 2 mánaða fyrirvara.

  8. Framsal

    Rétthafa er óheimilt að framselja, veðsetja eða á annan hátt ráðstafa inneign og tekjum af inneign samkvæmt samningi þessum. Ekki verður gerð aðför að réttindum samkvæmt samningi þessum og enginn skuldheimtumaður í dánarbúi eða þrotabúi hefur rétt til að skerða þessi réttindi á nokkurn hátt.

  9. Annað

    Inneign og tekjur vegna hennar samkvæmt samningi um lífeyrissparnað lúta gildandi skattalögum eins og þau eru á hverjum tíma.

  10. Samþykktir Íslenska lífeyrissjóðsins

    Að öðru leyti vísast í samþykktir Íslenska lífeyrissjóðsins.

 Reglur um viðbótarlífeyrissparnað Landsbankans