Útgreiðsluleið III
Útgreiðsluleið III hentar þér ef þú vilt leggja áherslu á að sem mest af séreign þinni erfist. Frjáls séreign og bundin séreign erfast, en samtryggingin erfist ekki.
Frjáls séreign (3,0%) getur hafist við 60 ára aldur og er hún þá laus til útborgunar líkt og viðbótarlífeyrissparnaður. Greiðslur úr bundinni séreign (4,7%) hefjast við 70 ára aldur. Greiðslur úr samtryggingu (4,3%) hefjast við 80 ára aldur og tryggja ævilangan ellilífeyri, sem og rétt til örorku-, maka- og barnalífeyris. Sjóðfélagi sem tekur alla séreign út við 60 ára aldur þarf að hafa í huga að útgreiðsla úr samtryggingu hefst ekki fyrr en við 70 ára aldur.
Ef ekki er valin ákveðin útgreiðsluleið fer sparnaðurinn sjálfkrafa í Útgreiðsluleið I.