Lögbundinn lífeyrissparnaður

Lífeyrissparnaður er ein mikilvægasta eign okkar. Með lögbundnum lífeyrissparnaði hjá Íslenska lífeyrissjóðnum ávinnur þú þér traustan ævilangan lífeyri og lífeyrissparnað í séreign. Þú nýtur einnig réttar til örorkulífeyris, makalífeyris og barnalífeyris.

Hvað er lögbundinn lífeyrissparnaður?

Öllum launþegum á aldrinum 16-70 ára, og þeim sem stunda atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi, er lögum samkvæmt skylt að greiða í lífeyrissparnað. Lögbundinn lífeyrissparnaður nemur að lágmarki 12% af heildarlaunum einstaklings og skiptist þannig að launagreiðandi greiðir 8% á móti 4% framlagi launþegans.

Hverjir geta greitt til Íslenska lífeyrissjóðsins?

Þeir sem ekki eru bundnir af ákvæðum kjarasamninga eða laga er frjálst að greiða lögbundinn lífeyrissparnað til Íslenska lífeyrissjóðsins. Öllum er heimilt að greiða viðbótarlífeyrissparnað til Íslenska lífeyrissjóðsins.

Spurt og svarað um lífeyrissparnað


Kostir Íslenska lífeyrissjóðsins

  • Samspil séreignar og samtryggingar
  • Fjölbreyttar ávöxtunarleiðir
  • Traust fjárfestingarstefna
  • Persónuleg ráðgjöf og þjónusta
  • Heildaryfirlit yfir stöðu þína í Einkabankanum

Nánar um Íslenska lífeyrissjóðinn

Lögbundinn lífeyrissparnaður veitir þér

  • Lífeyri í séreign, laus við 60 ára aldur
  • Traustan ellilífeyri frá 70 ára aldri til æviloka
  • Örorkulífeyri
  • Makalífeyri við fráfall sjóðfélaga
  • Barnalífeyri við örorku eða fráfall sjóðfélaga

Nánar

Ráðstöfun iðgjalds - Hvaða leið hentar þér?

Viltu ráðstafa þínum lífeyrissparnaði sem mest sjálf/ur? Eða viltu tryggja að sem mest af séreign þinni erfist? Hjá Íslenska lífeyrissjóðnum getur þú valið um tvær útgreiðsluleiðir. Munurinn felst í skiptingu milli samtryggingar, bundinnar séreignar og frjálsrar séreignar.

Sjá nánar um útgreiðslu

... hentar þér ef þú vilt eiga möguleika á að njóta sparnaðarins snemma og ráðstafa honum sem mest sjálf/ur. Frjáls séreign erfist, en samtrygging erfist ekki.

Sjá nánar um útgreiðslu

... hentar þér ef þú vilt leggja áherslu á að sem mest af séreign þinni erfist. Frjáls séreign og bundin séreign erfast, en samtrygging erfist ekki.

Þú velur þína ávöxtunarleið

Íslenski lífeyrissjóðurinn býður upp á fjórar ávöxtunarleiðir fyrir sériegnahluta í lögbundnum lífeyrissparnaði: Líf I, Líf II, Líf III og Líf IV. Flestir kjósa að fylgja Lífsbraut Íslenska lífeyrissjóðsins þar sem þeir færast sjálfkrafa á milli Líf I, II, III og IV eftir aldri. Samtrygging fylgir sömu ávöxtunarleið og Líf II í samræmi við fjárfestingarstefnu Íslenska lífeyrissjóðsins.

Ávöxtun lífeyrissparnaðar (nafnávöxtun %) 31. desember 2011
Veldu ávöxtunarleið
Frá áramótum
2010 2009 2008
2007
2006
2005
Líf I: 16-44 ára
9,43
13,4 16,2
-22,5
8,1
20,4
14,7
Líf II: 45-54 ára
9,99
11,8 15,1
-20,7
8,0
19,4
12,8
Líf III: 55-64 ára
10,27
11,8 13,7
-19,7
9,4
14,8
9,4
Líf IV: 65 árs+
9,44
13,4 12,1
-19,2
14,2
11,3
8,2
Samtrygging
7,30
7,2 11,7
-18,4
7,7
19,6
14,2