Skuldalækkun Landsbankans 2011

Skuldalækkun Landsbankans 2011

Í lok maí 2011 kynnti Landsbankinn ný og endurbætt úrræði til að lækka skuldir heimila. Úrræðin standa ekki lengur til boða.

Endurgreiðsla vaxta

Landsbankinn endurgreiddi vexti til skilvísra viðskiptavina og var um að ræða endurgreiðslu af 20% allra greiddra samningsvaxta á tímabilinu 31.12.2008 til 30.4.2011. Vaxtaendurgreiðslan gat að hámarki numið 1 milljón króna og komu áður fengnar vaxtaendurgreiðslur til frádráttar. Endurgreiðslunni var ráðstafað inn á eftirstöðvar lána hjá bankanum og kom því til lækkunar á greiðslubyrði viðkomandi. Í þeim tilvikum er viðskiptavinur var skuldlaus við bankann, þegar endurgreiðslan átti sér stað, var fjárhæðin lögð inn á reikning viðkomandi til ráðstöfunar.

Lækkun fasteignaskulda

Landsbankinn lækkaði almennt veðskuldir umfram 110% af fasteignamati sem hvíldu á íbúðarhúsnæði í eigu einstaklinga. Aðrar eignir komu alla jafna ekki til lækkunar á niðurfærslu skulda og ekki var tekið tillit til tekna heimilis við útreikninga. Niðurfærsla gat að hámarki numið 15 milljónum króna til einstaklinga og 30 milljónum króna fyrir hjón, sambúðarfólk og einstæða foreldra.

Í þeim tilvikum er fasteignamat var hærra en 30 milljónir króna, eða ef bankinn taldi fasteignamat ekki gefa rétta mynd af virði fasteignar, áskildi bankinn sér rétt að kalla eftir verðmati löggilts fasteignasala. Nam niðurfærslan hærri fjárhæð en 10 milljónum króna til einstaklinga og 20 milljónum króna til hjóna, sambúðarfólks og einstæðra foreldra, áskildi bankinn sér rétt til að taka tillit til annarra aðfararhæfra eigna. Það sama gilti um eignir að verðmæti umfram 30 milljónir króna af fasteignamati.

Lækkun fasteignaskulda byggði á samkomulagi lánveitenda á íbúðalánamarkaði um verklagsreglur í þágu yfirveðsettra heimila. Landsbankinn gekk hins vegar lengra en samkomulagið gerði ráð fyrir.

Lækkun annarra skulda

Landsbankinn bauð upp á lækkun annarra skulda en undir úrræðið féllu helstu skuldir án trygginga, skuldir með lánsveði og skuldir með sjálfskuldarábyrgð. Undanskilin voru brúunarlán, greiðslukortaskuldir, fyrirgreiðslur vegna námslána, fyrirgreiðslur vegna flugnáms og fyrirgreiðslur vegna greiðsluþjónustu.

Gerður var samningur til þriggja ára og notar lántaki 10% af tekjum heimilis, samkvæmt upplýsingum á skattframtali fyrir árið 2010, til að greiða af skuldbindingum sem falla undir samninginn næstu þrjú árin. Standi lántaki við samninginn falla eftirstöðvar þeirra krafna sem samningurinn nær til niður í lok samningstímans. Niðurfærsla gat að hámarki numið 4 milljónum króna til einstaklinga og 8 milljónum króna fyrir hjón eða sambúðarfólk. Hrein eign heimilis samkvæmt skattframtali kom til frádráttar á hámarksniðurfærslu samningsins.

Fyrirvari

Lækkun skulda samkvæmt framansögðu byggir ekki á skyldu af hálfu bankans, né felur hún í sér viðurkenningu Landsbankans á slíkri skyldu. Landsbankinn hefur áskilið sér rétt til að breyta þeim forsendum sem lagðar voru til grundvallar lækkunar skulda og eftir atvikum breyta eða setja ný skilyrði fyrir ákvörðun bankans.