Flokkur: Sértæk úrræði
Skuldaaðlögun felur í sér samning milli kröfuhafa og lántaka. Standi lántaki við gerðan samning getur skuldaaðlögun falið í sér eftirgjöf krafna, hlutfallslega lækkun þeirra eða gjaldfrest á kröfum umfram greiðslugetu. Ætluð viðskiptavinum í verulegum greiðsluerfiðleikum og önnur vægari úrræði duga ekki til.
Nánar
Opinber greiðsluaðlögun
Með opinberri greiðsluaðlögun er ætlunin að gera einstaklingum í verulegum greiðsluerfiðleikum kleift að endurskipuleggja fjármál sín og koma jafnvægi á milli skulda og greiðslugetu. Viðskiptavinir geta sótt um opinbera greiðsluaðlögun hjá Umboðsmanni skuldara.
Nánar á vef Umboðsmanns skuldara.