Almenn úrræði

Flokkur: Almenn úrræði

Endurútreikningur gengistryggðra lána

Landsbankinn er að leiðrétta endurreikning gengistryggðra lána einstaklinga og lögaðila þar sem uppfyllt eru þau skilyrði sem finna má í dómum Hæstaréttar á árinu 2012 frá því í febrúar (mál nr. 600/2011) og október (mál nr. 464/2012).

Nánar um endurútreikninginn


Greiðslujöfnun

Greiðslujöfnun er almennt úrræði sem lækkar greiðslubyrði verðtryggðra íbúðalána tímabundið og getur hentað greiðslubyrði viðskiptavina betur tímabundið. Til lengri tíma litið getur greiðslujöfnun þó leitt til aukins kostnaðar í formi vaxta og verðbóta.

Nánar um greiðslujöfnun


Eingöngu vaxtagreiðslur

Viðskiptavinum stendur til boða að létta greiðslubyrði íbúðalána með því að greiða eingöngu vexti af láninu í allt að 12 mánuði. Sé íbúðalánið í vanskilum er sá möguleiki skoðaður að skuldbreyta vanskilunum.

Pantaðu fjármálaviðtal eða komdu við í næsta útibúi.