Lausnir fyrir heimilið

Landsbankinn býður upp á mörg úrræði fyrir heimili sem eiga við greiðsluerfiðleika að etja. Við aðstoðum þig við að velja lausn sem kemur til móts við þínar þarfir

Efst á baugi

Skuldalækkun Landsbankans

Við byggjum á traustri fjárhagsstöðu og viljum nú lækka skuldir viðskiptavina okkar með nýjum aðgerðum. Það er yfirlýst stefna bankans að styðja við endurreisn heimila og atvinnulífs. Við leggjum áherslu á einfaldleika og skilvirkni, gagnkvæman ávinning og umbun skilvísra viðskiptavina. | Skoða raundæmi um skuldalækkun

Reglur


Sértæk skuldaaðlögun

Skuldaaðlögun felur í sér samning milli kröfuhafa og lántaka. Standi lántaki við gerðan samning getur skuldaaðlögun falið í sér eftirgjöf krafna, hlutfallslega lækkun þeirra eða gjaldfrest á kröfum umfram greiðslugetu. Ætluð viðskiptavinum í verulegum greiðsluerfiðleikum og önnur vægari úrræði duga ekki til.

Nánar


Tæki til að takast á við fjármál heimilisins

Fyrsta skrefið í að öðlast betri yfirsýn yfir fjármálin er að skoða útgjöld og tekjur heimilisins. Hér fyrir neðan er hægt að nálgast sjálfvirkt heimilisbókhald og einfalt stöðumat sem veita skýra yfirsýn yfir fjárreiður heimilisins. Í fjármálaviðtali fer starfsmaður Landsbankans yfir stöðuna og skoðar hvort og til hvaða sameiginlegu aðgerða þurfi að grípa.

Sjálfvirkt heimilisbókhald

Heimilisbókhaldið í Einkabankanum veitir þér góða yfirsýn yfir fjármál heimilisins á myndrænan hátt. Heimilisbókhaldið er mjög einfalt og auðskilið og því fylgir engin fyrirhöfn og enginn kostnaður.

Nánar um heimilisbókhaldið

Stöðumat

Stöðumat er einföld leið til að meta helstu útgjaldaþætti heimilisins, reikna út greiðslugetu áður en ný lán eru tekin og finna laust fé til að leggja fyrir í reglubundinn sparnað.

Gera stöðumat