Landsbankinn býður einstaklingum hagstæð lán til framkvæmda og endurbóta á íbúðarhúsnæði og sumarhúsum. Lánað er til endurbóta innan- og utanhúss og til framkvæmda á eignum sem hafa náð byggingarstigi 4, eða eru fokheldi. Boðið er upp á allt að 2 milljóna króna óverðtryggt lán til fimm ára. Vextirnir eru þeir sömu og eru á óverðtryggðum íbúðalánum bankans og lántökugjöld eru engin. Umsóknarfrestur er til 1. desember 2012.
Landsbankinn vill með þessu leggja sitt af mörkum til hvatningarátaksins Allir vinna og taka þátt í að örva atvinnulíf og framkvæmdir.
Allir vinna er hvatningarátak stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins um atvinnuskapandi framkvæmdir á Íslandi. Þeir sem ráðast í framkvæmdir á heimilinu eiga rétt á 100% endurgreiðslu á virðisaukaskatti af vinnulaunum og skattafrádrætti sem getur numið allt að 300.000 krónum.
Hafðu samband
Panta ráðgjöf
Reiknaðu dæmið
Nánari upplýsingar á allirvinna.is
Landsbankinn hf. Austurstræti 11, 155 Reykjavík, Kt. 471008-0280
Swift: NBIIISRE Reglur Lagalegur fyrirvari Umboðsmaður viðskiptavina Veftré