Verðtryggð íbúðalán

Verðtryggð íbúðalán

Kostir láns

Verðtryggð íbúðalán eru með breytilegum vöxtum til lengri tíma og henta þeim sem kjósa lægri greiðslubyrði og hægari eignamyndun í flestum tilfellum. Lánað er til íbúðakaupa, endurfjármögnunar á eldri lánum, nýbyggingar eða endurbóta á íbúðarhúsnæði.
Lánið er veitt gegn fyrsta veðrétti.

Lánstími

  • Lánstími er allt að 40 ár.
  • Viðbótarlán er til að hámarki 15 ára með jöfnum afborgunum.

Vextir

Verðtryggð íbúðalán
Lánshlutfall Vextir
Allt að 70% 3,90%
70 til 85% 4,90%

Lánshlutfall

  • Lánað er fyrir allt að 70% af markaðsvirði eða verðmati eignar en einnig er mögulegt að fjármagna allt að 85% með viðbótarláni.
  • Hámarkslánshlutfall getur ekki orðið hærra en sem nemur samanlögðu brunabótamati og lóðamati íbúðarhúsnæðis.
  • Lágmarkslánsfjárhæð er 1 milljón króna.

Afborganir

Gjöld

  • Stimpilgjald er 1,5% og rennur til ríkissjóðs (engin stimpilgjöld þarf að greiða af fyrstu íbúð).
  • Til 31. desember 2012 (skv. lögum) er ekkert stimpilgjald er tekið ef endurfjármagna á íbúðalán. Stimpilgjald er fellt niður af þeim hluta nýja lánsins sem samsvarar uppreiknuðu virði eldra lánsins ásamt vanskilum.
  • Ekkert lántökugjald er tekið ef aðeins á að endurfjármagna lán hjá Landsbankanum, enda hefur lántakandi áður greitt gjaldið.
  • Þinglýsingargjald sem rennur til ríkissjóðs.
  • Lántökugjald, sem er 1%.
  • Önnur gjöld skv. gjaldskrá bankans. Ekkert umframgreiðslugjald.

 

Ertu að kaupa þína fyrstu fasteign?

Lántakendur sem eru að kaupa sína fyrstu fasteign og standa í skilum með lán sitt fá árlega endurgreiðslu frá bankanum um hver áramót í þrjú ár. Endurgreiðslan er sem nemur 25 punktum af greiddum vöxtum lánsins og greiðist inn á skuldfærslureikning lántaka.

Ertu Vörðufélagi?

Aðrar upplýsingar

  • Blandað íbúðalán er í boði, hluti óverðtryggður og hluti verðtryggður.
  • Lántaki þarf að standast greiðslumat.
  • Veðflutningar lána eru heimilir (þar sem við á).

Greiðsluhögun

Jafnar afborganir

 

Þegar um jafnar afborganir af höfuðstól er að ræða er alltaf greitt jafn mikið af höfuðstól lánsins og leggjast uppsafnaðir vextir við afborgun höfuðstóls. Eignamyndun er jöfn yfir lánstímann.

Jafnar greiðslur (annuitet)

Jafnar greiðslur fela í sér að hver gjalddagi er jafn hár þeim næsta, að verðbótum undanskildum. Afborgun af höfuðstól er mjög lág til að byrja með og eignamyndun hraðari síðari hluta lánstímans en fyrri hluta hans.