Landsbankinn býður nú óverðtryggð íbúðalán á föstum vöxtum til 36 eða 60 mánaða. Áður en kemur að lokagjalddaga fastvaxtatímabilsins velur lántaki hvort festa eigi vexti aftur á þeim kjörum sem í boði eru á þeim tíma, að öðrum kosti verður lánið með breytilegum óverðtryggðum vöxtum út lánstímann. Lánið skal vera á fyrsta veðrétti eða í samfelldri veðröð frá og með fyrsta veðrétti. Lánið hentar þeim sem vilja endurfjármagna lán hjá Landsbankanum án lántökukostnaðar. Einnig hentar lánið þeim sem vilja fremur hraða eignamyndun og forðast uppsöfnun verðbóta á höfuðstól.
Sæktu um
Reiknaðu dæmið
Hafðu samband
Lántakendur sem eru að kaupa sína fyrstu fasteign og standa í skilum með lán sitt fá árlega endurgreiðslu frá bankanum í janúar í þrjú ár. Endurgreiðslan er sem nemur 0,25 prósentustigum af greiddum vöxtum lánsins og greiðist inn á skuldfærslureikning lántaka. Endurgreiðslan nær ekki til lána sem hafa verið endurfjármögnuð þótt um fyrstu kaup sé að ræða.
Landsbankinn hf. Austurstræti 11, 155 Reykjavík, Kt. 471008-0280 Swift: NBIIISRE
Swift: NBIIISRE Reglur Lagalegur fyrirvari Umboðsmaður viðskiptavina Starfsfólk Veftré