Svar:
Bílalán: Lántaki velur bílinn og kaupir hann. Landsbankinn lánar honum fyrir kaupverðinu. Lántaki er skráður eigandi bílsins en Landsbankinn er með 1. veðrétt. Við uppgreiðslu lánsins afléttir Landsbankinn veðinu af ökutækinu.
Bílasamningur: Lántaki velur bílinn. Landsbankinn kaupir bílinn og leigir lántaka hann og í lok samningstíma eignast lántaki bílinn. Landsbankinn er skráður eigandi bílsins á samningstíma.