Eigendaskipti

Eigendaskipti

Þegar kaupandi og seljandi eru ásáttir um kaupverð og kjör gera þeir eigendaskiptatilkynningu sem senda skal Umferðastofu eða á skoðunarstöð innan 7 daga. Einnig gera kaupandi og seljandi með sér kaupsamning og ef kaupandi hefur greitt seljanda kaupverð bifreiðarinnar að fullu gera þeir með sér afsal. Kaupandi sér um að tryggja ökutækið.

Skipt um umráðamann

Athugið að ef um bílasamning er að ræða er skipt um umráðamann við sölu á ökutækinu. Þá er fyllt út eyðublaðið Tilkynning um umráðamann og það undirritað af viðtakandi umráðamanni og starfsmanni Landsbankans.

Við gerð umráðamannatilkynningar þarf að gera eftirfarandi

  • Skrá fastnúmer ökutækis.
  • Haka við reitinn „Tilkynning um umráðamann“.
  • Nafn og kennitala leigutaka (umráðamanns) skrifað á línuna fyrir neðan.
  • Staður og dagsetning skráð.
  • Starfsmaður Landsbankans skrifar undir á línuna „Undirskrift eiganda, kennitala“.
  • Umráðamaður (leigutaki) skrifar á línuna „Undirskrift umráðamanns, kennitala“.
  • Einn vottur þarf að skrifa nafn sitt og kennitölu.

Eigandaskiptatilkynning er staðlað form sem Umferðastofa gefur út.


Í eigandaskiptatilkynningu þarf eftirfarandi að koma fram

  • Nafn, kennitala og heimilisfang kaupanda.
  • Nafn, kennitala og heimilisfang seljanda.
  • Nafn, kennitala og heimilisfang meðeiganda (ef hann er).
  • Nafn, kennitala og heimilisfang umráðamanns (ef hann er).
  • Fastnúmer, tegund og undirtegund ökutækis.
  • Dagssetning kaupsamnings.
  • Tryggingafélag kaupanda.
  • Undirskrift kaupanda og seljanda.
  • Undirskrift meðeiganda (ef hann er).
  • Undirskrift umráðamanns (ef hann er).
  • Vottað af tveimur vottum.

Í tilkynningu um umráðamann þarf þarf að fylla út eftirfarandi

  • Skrá fastnúmer ökutækis.
  • Haka við reitinn Tilkynning um umráðamann.
  • Nafn og kennitala leigutaka (umráðamanns) skrifað á línuna fyrir neðan.
  • Staður og dagsetning skráð.
  • Starfsmaður Landsbankans skrifar undir á línuna „Undirskrift eiganda, kennitala“.
  • Umráðamaður (leigutaki) skrifar á línuna „Undirskrift umráðamanns, kennitala“.
  • Einn vottur þarf að skrifa nafn sitt og kennitölu.

Hafa ber eftirfarandi atriði í huga við gerð og tilkynningu eigendaskipta

  • Seljandi og kaupandi bera báðir ábyrgð á tilkynningu eigendaskipta. Góð regla er að ljósrita eintakið af tilkynningunni eða undirrita aukaeintök.
  • Tilkynningu um eigendaskipti þarf framvísa hjá Umferðarstofu eða á skoðunarstöð innan sjö daga frá eigendaskiptum.
  • Ef seljandi, kaupandi eða meðeigandi er yngri en 18 ára þarf samþykki sýslumanns fyrir kaupum/ sölu, sbr. 1. mgr. 69. gr. lögræðislaga nr. 71/ 1997.
  • Bifreiðagjöld þurfa að vera greidd, annars ganga eigendaskipti ekki í gegn.
  • Ef meðeigandi eða umráðamaður er tilgreindur við kaup ökutækis þarf að merkja sérstaklega í þar til gerðan reit. Meðeigandi og umráðamaður þurfa einnig að undirrita tilkynninguna.

Í afsali þarf að koma fram

  • Nafn, kennitala og heimilisfang kaupanda.
  • Fastnúmer, tegund, undirtegund og nýskráningardagur, akstur og fylgihlutir ökutækis.
  • Athugasemdir, fyrirliggjandi gögn og ábyrgðir.
  • Kaupverð og greiðslufyrirkomulag.
  • Staður og dagssetning afsals.
  • Undirskrift kaupanda og seljanda.
  • Tveir vottar.
  • Upplýsingar um Landsbankann
    Sigtúni 42
    105 Reykjavík
    Kennitala: 471008-0280

Kaupandi og seljandi fá hvor sitt eintakið af undirrituðu og vottuðu afsali

Hvað þarf kaupandi að gera?

Kaupandi þarf að fá eftirtaldar upplýsingar hjá seljanda

  • skírteini sem sannar að seljandi sé skráður eigandi bifreiðar.
  • hvort veð hvíli á bifreiðinni.
  • nýtt veðbókarvottorð (ef veð er á bifreiðinni).
  • eigendaferil.
  • niðurstöður úr undangengnum aðalskoðunum.
  • innlagningu á númerum ef um það er að ræða.
  • áhvílandi bifreiðagjöld (kaupandi greiðir bifreiðagjöld frá kaupdegi).
  • gildar ábyrgðartryggingar.
  • dagsetningar skráninga.
  • skoðunarskýrslur.

Einnig gott að fá eftirfarandi upplýsingar

  • reikninga vegna viðgerða og varahluta.
  • kvittanir, t.d. fyrir viðhaldi og öðru sem gert hefur verið.
  • rekstrar- og handbækur.

Kaupandi þarf að athuga

  • hvort seljandi sé skráður eigandi hjá Umferðastofu eða hafi vottað umboð eiganda til að selja.
  • hvort að veð sé á bifreiðinni.
  • hvort að bifreiðagjöld séu greidd. Kaupandi greiðir bifreiðagjöld frá kaupdegi hægt að reikna út á heimasíðu Ríkisskattstjóra undir reiknivélar.
  • hvort að allar skuldbindingar seljanda séu frágengnar áður en kaup eru gerð.
  • hvort bifreið sé skráð tjónabifreið eða hafi verið í eigu tryggingafélags.
  • Ástandsskoðun - að fá faggilda aðila til að ástandsskoða bílinn. Hlutlausir fagaðilar sem ástandsskoða bifreiðar eru Frumherji hf. og Aðalskoðun hf. og einnig býður fjöldi bifreiðaverkstæða þessa þjónustu - sjá vef Bílgreinasambandsins.


Hvað þarf seljandi að gera ?

Seljandi þarf að gera eftirfarandi eða hafa tiltækt

  • Leggja til skírteini sem sannar að hann sé skráður eigandi bifreiðar.
  • Leggja fram nýtt veðbókarvottorð eða staðfestingu um að bíll sé veðbandalaus.
  • Útvega upplýsingar um áhvílandi veð (ef veð er á bifreiðinni).
  • Útvega upplýsingar um eigendaferil.
  • Hafa niðurstöður úr undangengnum aðalskoðunum tiltækar.
  • Útvega innlagningu á númerum ef um það er að ræða.
  • Leggja til gögn um að bifreiðagjöld séu greidd.
  • Útvega gögn um gildar ábyrgðartryggingar.
  • Sýna dagsetningar skráninga.
  • Leggja til skoðunarskýrslur.