Grænir bílar

Græn bílafjármögnun

Lántakendur með græna bíla bjóðast hagstæð kjör á bílasamningum og bílalánum hjá Landsbankanum. Grænir bílar eru skilgreindir sem bílar með minnsta mögulegan útblástur sem eru flokkar A/B/C og losa 0-120 g af koltvísýringi á hvern ekinn kílómetra.

Ekkert lántökugjald fram til 1. júlí

Græn bílafjármögnun er í boði bæði í formi bílalána og bílasamninga en lántakendur fá hagstæða vexti og greiða ekkert lántökugjald fram til 1. júlí.

  • Ekkert lántökugjald
  • Breytilegir óverðtryggðir vextir, nú 8,70%*

Að öðru leyti gilda sömu skilmálar og í öðrum lánum, hægt er að fá lán til kaupa á nýjum eða notuðum bíl, veitt eru lán fyrir allt að 75% af kaupverði bíls og er hámarkslánstími 7 ár að frádregnum aldri bílsins.

* Vildarkjör til Vörðufélaga og núverandi skilvísra viðskiptavina Bíla- og tækjafjármögnunar.

Samfélagsstefna

Stefna Landsbankans um samfélagslega ábyrgð hefur sett bankanum þau markmið að tengja starfshætti sína við efnahags,- samfélags- og umhverfismál. Með það fyrir augum hefur Landsbankinn ákveðið að bjóða upp á græn bílalán þar sem lántakendum gefst kostur á að tvinna saman umhverfissjónarmið og hagstæðari kjör við bílafjármögnun.

Upplýsingar um losun koltvísýrings má finna á vef Umferðarstofu