Sjálfvirkar greiðslur eru valkostur fyrir einstaklinga sem vilja greiða útgjöldin sín skilvíslega án fyrirhafnar. Viðskiptavinir geta valið á milli þess að setja útgjöldin í boð- eða beingreiðslur.
Boðgreiðslur á kreditkortið
Boðgreiðslur eru útgjöld sem skuldfærð eru á kreditkort viðskiptavina að þeirra beiðni. Hægt er að setja flest regluleg útgjöld í boðgreiðslur að undanskyldum lánum.
Má bjóða þér aukin fríðindi?
Með því að setja regluleg útgjöld s.s. orkureikninga, símreikninga, fasteignagjöld, leikskólagjöld, áskriftir o.fl. í boðgreiðslur færðu aukin fríðindi, hvort sem þú safnar Aukakrónum, Vildarpunktum eða upp í ferðaávísun.
Kostir boðgreiðslna eru
- Skilvísar greiðslur án fyrirhafnar
- Engir dráttarvextir
- Engin seðilgjöld
- Aukin fríðindi
Til að setja föst útgjöld í boðgreiðslur á kreditkort þarf að hafa beint samband við viðkomandi fyrirtæki, sveitafélög og stofnanir.
Beingreiðslur á tékkareikning / veltureikning
Beingreiðslur eru útgjöld sem skuldfærð eru reglulega af tékkareikningi / veltureikningi viðskiptavinar. Hægt er að setja allar reglulegar greiðslur í beingreiðslur, þ.m.t. lán. Beingreiðslur gera þér kleift að greiða t.d. afnotagjöld fjölmiðla, rafmagnsreikninga, tryggingariðgjöld, húsnæðislán, bílalán o.fl. með sjálfvirkum hætti án fyrirhafnar.
Kostir beingreiðslna eru
- Skilvísar greiðslur án fyrirhafnar
- Engir dráttarvextir
- Engin seðilgjöld
Skrá beingreiðslur á tékkareikning / veltureikning í netbankanum