Skilmálar vegna Visa kreditkorta Landsbankans
1. Umsókn, útgáfa korts
1.1. Umsækjandi um VISA kreditkort, hér eftir nefnt „kort”, skal fylla út og senda vefumsókn þessa til banka eða sparisjóðs, hér eftir nefndur útgefandi, sem er aðili að Valitor hf., hér eftir nefnt „Valitor”. Valitor annast útgáfu korta fyrir hönd útgefenda og á þeirra ábyrgð.
1.2. Viðkomandi útgefandi svo og Valitor áskilja sér rétt til að leita allra upplýsinga, sem nauðsynlegar eru að mati hans til að afgreiða umsókn, þ.m.t. upplýsingar um fjárhagsmálefni umsækjanda, sem til eru hjá útgefanda og Valitor, og er heimilt að hafna umsókn án þess að tilgreina ástæðu.
1.3. Áður en kort er gefið út, eða hvenær sem útgefandi fer fram á slíkt, skal umsækjandi leggja fram fullnægjandi tryggingu, að mati útgefanda, fyrir skilvísum greiðslum úttekta með korti. Getur slík trygging verið í formi sjálfsábyrgðar þriðja aðila, afhendingu tryggingavíxils eða annars samkvæmt samkomulagi umsækjanda og útgefanda.
1.4. Kort gilda til ákveðins tíma í senn og eru til notkunar innanlands og utan samkvæmt ákvæðum skilmála þessara og notkunarheimildum og reglum útgefanda og Valitor eins og þær eru hverju sinni.
1.5. Öll kort eru með mynd af korthafa, sem hann hefur lagt fram með umsókn eða til er í gagnagrunni Reiknistofu bankanna. Myndir sem afhentar eru með umsókn eru varðveittar í gagnagrunni Reiknistofu bankanna skv. reglum viðkomandi útgefanda.
2. Samþykki skilmála
Með því að samþykkja viðskiptaskilmála vefumsóknar, með undirritun umsóknar við móttöku kortsins, eða með fyrstu notkun kortsins, samþykkir umsækjandi að fylgja í hvívetna skilmálunum. Áður en væntanlegur korthafi samþykkir skilmálana ber honum að kynna sér þá vandlega.
3. Notkun korts
3.1. Korthafa ber að rita nafn sitt á kortið við móttöku og hefur hann einn heimild til að nota það.
3.2. Kortið veitir rétt til úttektar á vöru og þjónustu hjá þeim sölu- og þjónustuaðilum sem taka við kortum. Við úttekt á vöru og þjónustu skal korthafi rita nafn sitt með eigin hendi á sölunótu eða skrá sjálfur sérstakt leynilegt og persónulegt innsláttarnúmer sitt, PIN-númer, fari sölu- eða þjónustuaðili fram á slíkt. Með áritun á sölunótu eða innslætti á PIN-númeri samþykkir korthafi þau viðskipti sem tilgreind eru á sölunótunni. Korthafi getur tekið út reiðufé með kortinu í þeim bönkum, sparisjóðum og hraðbönkum sem bjóða korthöfum VISA slíka þjónustu.
3.3. Sé kortið notað í hraðbönkum eða öðrum sjálfsafgreiðslutækjum kemur PIN-númer í stað undirskriftar korthafa á sölunótu. Korthafa er hvorki heimilt að láta PIN-númer sitt öðrum í té né geyma það með kortinu
3.4. Korthafi er ábyrgur fyrir öllum úttektum sem staðfestar eru með PIN-númeri.
3.5. Hvert kort hefur hámarksúttektarheimild óháða úttektartímabili. Heimildin er ákveðin af útgefanda og korthafi skuldbindur sig til að nota kortið ekki umfram tilgreinda hámarksheimild.
3.6. Korthafi getur stofnað til greiðsluþjónustusamninga með korti sínu um boð-, rað- og léttgreiðslur, hjá söluaðilum sem það bjóða og skv. þeim reglum sem útgefandi setur.
3.7. Korthafi er ábyrgur fyrir varðveislu kortsins þannig að óviðkomandi aðili geti ekki komist yfir það, enda ber honum að gæta þess á sama örugga hátt og peninga, tékka og annarra verðmæta.
3.8. Úttektir korthafa í erlendri mynt eru umreiknaðar í íslenskar krónur á því gengi sem í gildi er þegar færslan berst Valitor í greiðsluskiptum milli landa.
3.9. Athygli er vakin á því að notkun korts í gjaldeyrisviðskiptum fellur undir upplýsingaskyldu samkvæmt lögum nr. 87/1992 um gjaldeyrismál og reglugerð eða reglum sem settar eru skv. þeim.
4. Hámarksúttekt og færslutímabil
4.1. Viðskipti með korti eru bundin við ákveðnar hámarksfjárhæðir í hvert sinn, mismunandi eftir sölu- og þjónustuaðilum. Söluaðilar geta sótt um heimild hjá Valitor til að fara yfir viðkomandi hámarksfjárhæðir í tilteknum viðskiptum.
4.2. Almennt færslutímabil, sem reikningsyfirlit korthafa miðast við, er frá 22. degi mánaðar til 21. dags næsta mánaðar að báðum dögum meðtöldum. Innlendir söluaðilar geta gert samning við Valitor um „breytileg úttektartímabil” og eru þau auglýst sérstaklega.
5. Hlunnindi
5.1. Korti geta fylgt ýmis hlunnindi, svo sem almenn ferðaslysa- og sjúkratrygging skv. tryggingaskilmálum hverrar tegundar korts, viðlagaþjónusta SOS International, útvegun á neyðarkorti og neyðarfé auk margvíslegra sértengdra fríðinda samkvæmt auglýstum skilmálum þar um á hverjum tíma.
5.2. Valitor hefur heimild til að breyta, auka eða fella niður hlunnindi og/eða fríðindi skv. þessari grein, enda verði korthöfum kynntar slíkar breytingar á sama hátt og breytingar á skilmálum þessum, sbr. 12. gr.
6. Greiðsluskil
6.1. Valitor hefur heimild til að færa á reikningsyfirlit korthafa allar úttektir sem berast á kort hans og þau fjölskyldukort sem hann hefur samþykkt útgáfu á. Er korthafi ábyrgur fyrir greiðslu á þeim úttektum sem berast á kort hans og þau fjölskyldukort sem hann hefur samþykkt útgáfu á.
6.2. Útgefandi sendir korthöfum mánaðarlega reikningsyfirlit yfir úttektir tímabils, sem gjaldfalla á næsta eindaga og ber að greiða viðkomandi útgefanda að fullu í síðasta lagi 2. dag hvers mánaðar en sé sá dagur almennur lokunardagur banka og sparisjóða færist eindaginn til næsta afgreiðsludags. Hafi greiðsla ekki borist innan þess tíma skulu greiðast dráttarvextir frá eindaga til greiðsludags, eins og þeir eru auglýstir af Seðlabanka Íslands á hverjum tíma.
6.3. Sé um Veltikort að ræða er korthafa í sjálfsvald sett að borga inn á skuldina á eindaga eftir því sem honum hentar, að lágmarki 5% af útistandandi skuld auk vaxta, nú að lágmarki 5.000 kr., þó að því tilskildu að staða kortreiknings sé undir heimildarmörkum eftir greiðslu á eindaga. Skuldavextir eru breytilegir og háðir ákvörðun útgefanda.
6.4. Hafi korthafi veitt útgefanda heimild til skuldfærslu úttektar á viðskiptareikning sinn verður hún gerð á eindaga. e) Úttektir korthafa eru vaxtalausar fram að eindaga. f) Verði um ítrekuð vanskil að ræða hjá korthafa áskilur útgefandi sér fullan rétt til að loka kortinu og fela lögfræðingi sínum skuldina til innheimtu á kostnað korthafa.
7. Villur og ábyrgð
7.1. Hafi korthafi athugasemdir við reikningsyfirlit sitt ber honum að tilkynna það útgefanda innan 10 daga frá eindaga greiðslu. Eftir 30 daga frá eindaga greiðslu er útgefandi ekki lengur ábyrgur fyrir leiðréttingu á færslu.
7.2. Ef söluaðili er ófús eða ófær um að inna af hendi þá þjónustu sem korthafi hefur greitt fyrir, atburði aflýst eða söluaðili hættur rekstri, getur korthafi sent skriflega kvörtun til útgefanda í allt að 30 daga frá þeirri dagsetningu sem þjónustuna átti að inna af hendi, en þó eigi síðar en innan fjögurra mánaða frá þeim degi sem viðkomandi færsla á kort á sér stað. Kvörtuninni skulu fylgja fullnægjandi gögn til staðfestingar kaupum á þjónustunni. Telji Valitor að þjónustan hafi sannanlega ekki verið innt af hendi vegna ofangreindra ástæðna, endurgreiðir Valitor sem svarar vanefndunum. Komi óviðráðanlegar ytri aðstæður upp (force majeure), sem varða ekki viðkomandi söluaðila eingöngu, svo sem náttúruhamfarir, sprengjuárás/sprengjuhótun, stríð, verkföll, faraldur, viðskiptabann, sjótjón og óeirðir, í veg fyrir að söluaðili geti uppfyllt skyldur sínar gagnvart korthafa, veitir slíkur ómöguleiki korthafa ekki rétt til endurgreiðslu samkvæmt ofangreindu.
7.3. Sérhver ágreiningur út af gæðum vöru eða þjónustu skal leystur beint á milli korthafa og seljanda og ber útgefandi eða Valitor enga ábyrgð á gæðum keyptrar vöru eða þjónustu.
7.4. Telji korthafi að hann hafi orðið fyrir tjóni vegna tæknilegrar bilunar í hraðbanka eða öðrum sjálfsafgreiðslutækjum, ber Valitor fyrir hönd viðkomandi sölu- eða þjónustuaðila að færa fram fullgild rök fyrir því að búnaðurinn hafi starfað rétt þá er umrædd viðskipti fóru fram, en er ella ábyrgt fyrir tjóninu. Ábyrgð Valitor takmarkast við beint fjárhagslegt tjón korthafa. Valitor ábyrgist ekki tjón þegar tæknibilun á að vera korthafa ljós, svo sem þegar skilaboð þess efnis koma fram á tölvuskjá.
7.5. Valitor ber hvorki ábyrgð á því ef móttöku korts er hafnað sem greiðslu hjá söluaðila eða í sjálfsafgreiðslutæki, né því tjóni sem leitt getur þar af.
8. Vanefndir og lokun korta
8.1. Kort er eign útgefanda og er honum eða Valitor heimilt að afturkalla fyrirvaralaust öll kort korthafa, þ.m.t. fjölskyldukort hans í eftirfarandi tilvikum:
8.2. Ef korthafi eða handhafi korts vanefnir skyldur sínar samkvæmt skilmálum þessum.
8.3. Ef fjárnám verður gert hjá korthafa, handhafa korts eða ábyrgðar-manni, komi fram ósk um gjaldþrotaskipti á búi þeirra, leiti þeir nauðasamninga eða öðrum VISA-kortum þeirra er lokað.
8.4. Ef Valitor eða útgefandi þurfa að afskrifa ógreiddar kröfur á korthafa vegna kortanotkunar eða vanskil verða af hans hálfu hvað varðar greiðslur á gjaldföllnum kröfum vegna notkunar korts.
8.5. Sé korti lokað er kortnúmer skráð í lokanaskrá Valitor. Upplýsingum um lokuð kort er dreift til viðskiptabanka og sparisjóða sem aðild eiga að Valitor, óháð því hvar korthafi hefur viðskipti sín. Vegna áhættustýringar í kortaviðskiptum er heimilt að dreifa skrá um afturkölluð kortnúmer til sölu- og þjónustuaðila.
8.6. Ef sölu- eða þjónustuaðili fer fram á að korthafi skili korti sem hefur verið lokað ber honum að gera það.
8.7. Korthafa er óheimilt að nota kortið eftir að gildistími þess rennur út eða það hefur verið lokað. Misnotkun kortsins varðar við lög, sbr. m.a. 249. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
8.8. Vanefnd korthafa eða handhafa korts á skyldum sínum samkvæmt skilmálum þessum, þ.m.t. á greiðslu gjaldfallinna krafna vegna notkunar korts, geta leitt til þess að korthafi og handhafi korts fái ekki nýtt kort útgefið síðar.
8.9. Ef korthafi hefur í eigin nafni gert söluaðilasamning við Valitor um móttöku korta sem greiðslu fyrir vöru og þjónustu, áskilur Valitor sér rétt til að ráðstafa hluta eða öllu söluandvirði til greiðslu vanskilaskulda korthafa sem eru vegna korts, sem gefið hefur verið út vegna hans eða með hans samþykki.
8.10. Vilji korthafi loka korti með uppsögn á samningi sínum við útgefanda eða afturkalla umsókn sína skal hann tilkynna það skriflega til viðkomandi útgefanda og skila kortinu sundurklipptu, hafi umsækjandi þegar veitt því móttöku. Verði korti lokað, án þess að um vanefndir korthafa sé að ræða, endurgreiðist árgjald hlutfallslega.
8.11. Fái korthafi nýtt kort í stað korts sem hefur glatast, því verið sagt upp eða lokað, er heimilt að færa á hið nýja kort, eða annað kort í eigu korthafa, það sem eftir stendur af sjálfvirkum greiðslum (raðgreiðslum, kortalánum, léttgreiðslum, boðgreiðslum, Alefli eða fjölgreiðslum), sem korthafi hefur samþykkt að færa megi á kort sitt.
9. Glötuð kort
9.1. Glatist kort ber korthafa að tilkynna það tafarlaust til Valitor eða næsta umboðsaðila VISA hvar sem er í heiminum. Sé tilkynningin gefin símleiðis, skal staðfesta hana innan 3ja daga.
9.2. Óski korthafi eftir nýju korti í stað glataðs ber honum að skila inn skriflegri yfirlýsingu um glatað kort og undirrita þar beiðni um nýtt kort.
9.3. Hafi glatað kort verið notað af óviðkomandi aðila áður en hvarf þess er tilkynnt ber korthafi sjálfsábyrgð er nemur jafnvirði 150 evra í íslenskum krónum. Korthafi er ábyrgur fyrir allri notkun korts og greiðslu úttekta sé um að ræða stórfellt gáleysi eða svik af hans hálfu í sambandi við kort sem tilkynnt eru glötuð.
9.4. Finni korthafi kort, sem tilkynnt hefur verið glatað, er honum óheimilt að nota það. Tilkynna ber útgefanda fund kortsins og skal skila því til hans.
9.5. Óski korthafi eftir enduropnun korts, sem tilkynnt hefur verið glatað en korthafi hefur fundið aftur, ber hann ábyrgð á allri notkun kortsins meðan það var glatað. Beiðni um enduropnun korts skal vera skrifleg eða með öryggiskóda.
10. Persónuvernd
10.1. Útgefandi og Valitor vinna persónuupplýsingar um korthafa, handhafa korta og ábyrgðarmenn. Þær upplýsingar sem um ræðir eru m.a. nafn, kennitala, heimilisfang og upplýsingar um banka- og kortaviðskipti.
10.2. Útgefanda og Valitor er nauðsynlegt og ber lagaskylda til að vinna persónuupplýsingar til að gegna hlutverki sínu sem fjármálafyrirtæki og greiðslumiðlun og til að tryggja öryggi í fjármálaþjónustu. Persónuupplýsingar eru notaðar við mat á umsóknum, útgáfu reikninga og við aðra eðlilega starfsemi útgefanda og Valitor.
10.3. Útgefandi ber almennt ábyrgð á vinnslu og meðferð persónuupplýsinga. d) Við vinnslu persónuupplýsinga er aðgangur takmarkaður við þá starfsmenn útgefenda og Valitor sem hann þurfa starfs síns vegna. Auk þess er útgefanda og Valitor heimilt að miðla persónuupplýsingum sín á milli og til vinnsluaðila, aðila sem gert hafa þjónustusamninga við útgefanda eða Valitor, ábyrgðaraðila að skuld korthafa eða aðra aðila sem korthafi heimilar. e) Útgefandi og Valitor tryggja persónuvernd að persónuupplýsingum með því að leitast við að uppfylla á hverjum tíma lög og reglugerðir sem lúta að persónuvernd, m.a. með mótun öryggisstefnu og setningu þeirra öryggis- og verklagsreglna sem krafist er. f) Persónuupplýsingar korthafa eru varðveittar á meðan kort korthafa er í gildi, eins lengi og lög mæla fyrir um eða viðskiptahagsmunir útgefenda eða Valitor krefjast þess og málefnaleg ástæða þykir til.
11. Gjaldtaka
11.1. Við fyrstu útgáfu korts greiðir korthafi sérstakt stofngjald auk venjulegs árgjalds.
11.2. Fyrir útgáfu nýs korts í stað glataðs greiðist endurútgáfugjald. Fyrir afgreiðslu neyðarfjár eða útvegun neyðarkorts greiðist afgreiðslugjald.
11.3. Útgefanda er heimilt að færa korthafa til gjalda mánaðarlegt útskriftargjald og færslugjöld vegna notkunar kortsins.
11.4. Af peningaúttekt erlendis og í hraðbönkum innanlands reiknast úttektargjald og þóknun. Gjaldeyrisþóknun reiknast af öllum erlendum viðskiptum.
11.5. Komi til vanskila skv. 6. kafla í skilmálum þessum eða vegna eftirstöðva raðgreiðslna / Kortalána sem Valitor innheimtir, reiknast korthafa til gjalda vanskilagjöld.
11.6. Korthafi heimilar útgefanda að endurnýja kortið 6 vikum áður en gildistími þess rennur út og halda áfram að endurnýja kortið á þann hátt þangað til fyrirmæli berast um annað frá korthafa. Útgefanda er heimilt að skuldfæra korthafa fyrir árgjaldi á 12 mánaða fresti.
11.7. Öll gjöld reiknast samkvæmt auglýstri gjaldskrá útgefanda eða Valitor á hverjum tíma.
12. Breyting á skilmálum
12.1. Útgefandi og Valitor hafa heimild til að breyta ákvæðum skilmála þessara einhliða. Ef breytingar eru ekki til hagsbóta fyrir korthafa skal honum tilkynnt um þær á tryggan hátt, s.s. með póstsendingu á tilkynnt aðsetur eða lögheimili korthafa, eða með skilaboðum í netbanka korthafa. Breytingar á skilmálum skulu kynntar korthafa eigi síðar en 15 dögum fyrir gildistöku þeirra. Í tilkynningu um breytta skilmála skal vakin athygli á því í hverju breytingarnar eru fólgnar og rétti korthafa til að segja samningi upp. Litið er svo á að korthafi hafi samþykkt breytinguna ef hann notar kortið eftir að nýir skilmálar hafa tekið gildi.
12.2. Ef korthafi sættir sig ekki við breytingu á skilmálum, getur hann sagt upp samningi sínum við útgefanda í samræmi við ákvæði gr. 8í skilmálum þessum.
13. Ýmis ákvæði
13.1. Korthafa er skylt að tilkynna aðsetursskipti til útgefanda til að tryggja að reikningsyfirlit og aðrar upplýsingar geti borist honum með eðlilegum hætti.
13.2. Til að gera notkun korts erlendis mögulega má Valitor staðfesta upplýsingar um kort til viðskiptaaðila VISA INTERNATIONAL.
14. Lög og varnarþing
14.1. Samningur korthafa og útgefanda og skilmálar þessir fara eftir íslenskum lögum, svo og öll mál sem rísa kunna af notkun kortsins, nema um annað sé sérstaklega samið.
14.2. Rísi mál vegna brota á skilmálum þessum má reka það fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Korthafi samþykkir auk þess að útgefandi megi, kjósi hann slíkt, reka innheimtumál í því landi, sem korthafi hefur búsetu hverju sinni.
15. Gildistími
Skilmálar þessir gilda frá 18. febrúar 2011.
Reykjavík, 1. febrúar 2011.
Valitor
16. Nokkur sérákvæði
Um neðangreind kort gilda eftirfarandi sérákvæði auk almennra viðskiptaskilmála Valitor:
17. Fjölskyldukort
17.1. Aðalkorthafi getur sótt um að fá útgefið fjölskyldukort, eitt eða fleiri, tengt kortreikningi sínum. Gilda skilmálar þessir jafnt fyrir aðalkorthafa sem og handhafa slíks fjölskyldukorts og telst hann einnig korthafi skv. þeim. Reikningsyfirlit fjölskyldukorts skulu send aðalkorthafa.
17.2. Forráðamaður ólögráða einstaklings getur óskað eftir að fá útgefið fjölskyldukort fyrir hönd þess ólögráða sem hann fer með forræði yfir. Umsækjandi er aðalkorthafi og sá ólögráða þá fjölskyldukorthafi. Fjölskyldukort verður þó aldrei gefið út til einstaklinga yngri en 16 ára.
17.3. Allar úttektir fjölskyldukorthafa eru gerðar í umboði aðalkorthafa og á hans ábyrgð. Er aðalkorthafi ábyrgur fyrir greiðslum á öllum úttektum og raðgreiðslusamningum / kortalánum fjölskyldukorthafa. Handhafi fjölskyldukorts, sé hann lögráða, ber á sama hátt ábyrgð á greiðslu úttekta sinna með kortinu með aðalkorthafa (in solidum).
17.4. Aðalkorthafi ábyrgist að fjölskyldukorthafi virði heimil úttektarmörk.
18. Vildarkort VISA og Icelandair
18.1. Vildarkort eru kort sem gefin eru út í samstarfi við Vildarklúbb Icelandair, hér eftir nefndur Vildarklúbbur. Handhafar Vildarkorta ávinna sér ferðapunkta vegna allrar innlendrar notkunar á kortinu hjá söluaðilum, sem hafa söluaðilasamning við Valitor. Að auki getur handhafi vildarkorts áunnið sér aukinn fjölda ferðapunkta í viðskiptum við þá sölu-og þjónustuaðila, sem Vildarklúbburinn hefur gert sérstaka samninga við. Vildarklúbburinn heldur skrá um áunna punkta og veitir Vildarkorthöfum rétt til að nýta punktana sem greiðslumiðil við kaup á flugfarseðlum og annarri þjónustu, sem Icelandair býður þeim með sérstöku viðskiptakerfi. Valitor eða útgefandi korts ber enga ábyrgð á því gagnvart korthafa að skrá um áunna punkta og staða þeirra í vildarkerfinu sé rétt.
18.2. Vildarklúbburinn veitir handhöfum Vildarkorta sérstök ferðatengd fríðindi samkvæmt ákvörðun Vildarklúbbsins frá einum tíma til annars, sem þeir geta nýtt sér með ráðstöfun ferðapunkta. Vildarklúbburinn gefur út nánari reglur þar um og veitir handhöfum Vildarkorta aðgang að upplýsingum um viðskiptastöðu sína í vildarkerfinu. Verði breytingar á þessum reglum upplýsir Vildarklúbburinn handhafa Vildarkorta um þær.
18.3. Vegna aðildar að vildarkerfi Icelandair greiðir handhafi Vildarkorts árlega sérstakt tengigjald til Vildarklúbbsins samkvæmt gjaldskrá útgefanda eða Valitor, sem heimilt er að skuldfæra korthafa fyrir á 12 mánaða fresti.
18.4. Korthafi samþykkir að Valitor og Vildarklúbbnum sé heimilt að miðla upplýsingum um notkun Vildarkorts í viðskiptum við þá aðila, þar sem viðskiptin veita handhafa ferðapunkta, þannig að unnt sé að uppfæra skrár þar um.
19. Viðskiptakort / Innkaupakort VISA
19.1. Viðskiptakort (VISA Business, VISA Purchasing) eru gefin út í nafni ákveðins fyrirtækis eða einstaklings þar sem fyrirtækið eða einstaklingurinn veitir tilteknum handhafa heimild til kortanotkunar fyrir sinn reikning.
19.2. Viðskiptakort geta haft færslutímabil og eindaga sem auglýst eru sérstaklega.
19.3. Verði viðskiptakort afturkallað, viðskiptaskilmálar Valitor vanefndir, fjárnám gert hjá handhafa, einstaklingi, fyrirtækinu eða ábyrgðarmanni, komi fram ósk um gjaldþrotaskipti á búi þeirra eða leiti þeir nauðasamninga, er Valitor heimilt að afturkalla og loka öllum kortum sem handhafi, einstaklingur eða fyrirtæki hefur fengið. Komi framangreind tilvik upp er öll kortnotkun frá þeim tíma á eigin ábyrgð handhafa, enda hafi útgefandi sent korthafa og handhafa korts tilkynningu þar um.
19.4. Bíla-innkaupakort VISA er frábrugðið öðrum kortum á þann hátt að hvorki undirskrift korthafa né mynd eru á kortinu. Handhafi skal samt sem áður rita nafn sitt með eigin hendi á sölunótu eða skrá sjálfur sérstakt leynilegt innsláttarnúmer, PIN-númer, fari sölu- eða þjónustuaðili fram á slíkt. Númer ökutækis og gerð er þrykkt á kortið í stað nafns korthafa. Bíla-innkaupakort er eingöngu hægt að nota hjá sölu- og þjónustuaðilum sem selja vörur fyrir bifreiðar eins og á bensínstöðvum, smurstöðvum, hjólbarðaverkstæðum og bifreiðaverslunum. Kortin eru gefin út í nafni ákveðins fyrirtækis sem síðan veitir tilteknum handhöfum heimild til notkunar á því.
20. VISA í +
20.1. Einstaklingar á aldrinum 16 til 18 ára geta sótt um að fá útgefið VISA í + með samþykki forráðamanns. Hver útgefandi fyrir sig ákveður form og efni samþykkis forráðamanns en skilmálar um fjölskyldukort gilda að öðru leyti um réttindi hans og skyldur.
21. Félagakort Landsbankans
21.1. Félagakortið er samstarfsverkefni Landsbankans, þess félags sem valið er í umsókninni og Valitor. Félagakortið er sammerkt kreditkort útgefið af Landsbankanum. Félagakortið gefur stuðningsmönnum viðkomandi félags tækifæri til að styðja félagið á einfaldan og áhrifaríkan hátt, bæði með beinu framlagi og í gegnum veltu á kortinu hjá samstarfsaðilum þess.
21.2. Handhafar Félagakortsins greiða fasta fjárhæð mánaðarlega í styrk til Félagsins. Lágmarksupphæð mánaðarlegrar greiðslu er ákveðin af félaginu. Upphæðin er skuldfærð á kortareikninginn mánaðarlega. Neiti korthafi að greiða þennan mánaðarlega styrk til félagsins, jafngildir það uppsögn á kortinu og verður það þá afturkallað.
21.3. Félagið gerir samninga við ákveðna söluaðila um afslátt af viðskiptum fyrir handhafa kortsins. Afsláttur þessi er rafrænn og gildir aðeins þegar greitt er með kortinu. Afsláttur þessi rennur til félagsins annarsvegar og korthafans hinsvegar og er skipting afsláttarins samningsatriði milli félagsins og hvers söluaðila sem veitir afsláttinn. Rafrænn afsláttur korthafa kemur til lækkunar á kortareikningi hans.
21.4. d) Félagið kann að veita handhöfum kortsins tiltekin fríðindi. Fríðindi þessi eru ákveðin af félaginu á hverjum tíma, og kynnt korthöfum á viðeigandi hátt.
22. Fríðindakerfi Landsbankans með söfnun Aukakróna
22.1. Landsbankinn gefur út kreditkort sem hægt er að tengja fríðindakerfi þar sem korthafar safna svokölluðum Aukakrónum vegna innlendrar verslunar hjá söluaðilum á kortunum skv. nánari ákvörðun bankans. Auk þess geta korthafar fengið afslátt í formi Aukakróna vegna viðskipta hjá söluaðilum sem eru sérstakir samstarfsaðilar í fríðindakerfinu.
22.2. Eingöngu er hægt að nota Aukakrónur hjá samstarfsaðilum Aukakrónukerfisins. Samstarfsaðilarnir taka við Aukakrónum sem greiðslu fyrir vörur og þjónustu og jafngildir þá hver Aukakróna einni íslenskri krónu.
22.3. Korthafar fá sérstakt úttektarkort, Aukakrónukort, fyrir þær Aukakrónur sem þeir hafa safnað. Áður en hægt er að nýta Aukakrónurnar þarf að millifæra þær inn á Aukakrónukortið. Hver millifærsla inn á Aukakrónukort þarf að vera að lágmarki 1.000,00 krónur.
22.4. Korthafar fá a.m.k. eitt Aukakrónukort frítt til þess að nýta Aukakrónuinneign sína. Ef korthafi þarf að fá nýtt Aukakrónukort útgefið áður en hið fyrra rennur út, áskilur sér Landsbankinn rétt til að taka gjald fyrir það skv. gjaldskrá bankans hverju sinni.
22.5. Korthafar geta skráð GSM símanúmer og/eða netföng sín á sérstakan útsendingarlista sem notaður verður eingöngu til þess að senda þeim sértilboð hjá samstarfsaðilum kerfisins. Korthafa geta skráð sig á þennan lista í Einkabankanum, eða með símtali í ráðgjafa- og þjónustuver Landsbankans. Tilboð þessi verða unnin og send út af Landsbankanum en í samstarfi við viðkomandi samstarfsaðila.
22.6. Landsbankinn heldur utan um söfnun Aukakróna og veitir allar upplýsingar um þær. Landsbankinn sér jafnframt um að veita upplýsingar um samstarfsaðila kerfisins og sértilboð á þeirra vegum.
22.7. Þegar korthafar nýta Aukakrónur með Aukakrónukorti bera þeir ábyrgð á því að innstæða kortsins sé næg fyrir öllum úttektum þeirra. Ef innstæðan reynist ekki næg við uppgjör frá söluaðila áskilur Landsbankinn sér rétt til að innleysa Aukakrónur korthafa á safnreikningum þeirra hjá bankanum. Ef heildareign Aukakróna nægir ekki fyrir úttektunum innheimtir Landsbankinn eftirstöðvar þeirra beint af kreditkortum korthafa.
22.8. Aukakrónur sem ekki eru nýttar innan fjögurra ára fyrnast. Upphaf fyrningartímans telst frá því að korthafi fær þær afhentar frá Landsbankanum.
22.9. Fríðindakerfið er í eigu Landsbankans og áskilur bankinn sér rétt til að hætta rekstri kerfisins hvenær sem er. Landsbankinn mun tilkynna korthöfum um slíka ákvörðun með a.m.k. 6 mánaða fyrirvara. Þegar rekstri kerfisins er hætt falla allar skuldbindingar Landsbankans vegna Aukakróna niður.
Við andlát korthafa eru Aukakrónur millifærðar á Aukakrónukort maka, ef maki er ekki til staðar þá er heimilt en ekki skylt að millifæra aukakrónur til lögerfingja. Eingöngu er heimilt að millifæra Aukakrónur yfir á annað Aukakrónukort.
Reykjavík 18. febrúar 2011