Debetkort

Debetkort eru mjög þægilegur og einfaldur greiðslumiðill. Debetkort sameina kosti tékkareikninga og sparisjóðsbóka.

Debetkort

Debetkortin henta vel fyrir eftirfarandi:

  • Sem launareikningur.
  • Fyrir yfirdráttinn.
  • Fyrir daglega notkun.

Hægt er að breyta yfirdrætti í afborgunarsamning á einfaldan og þægilegan hátt.

Sækja um Debetkort

Vörðu-gulldebetkort

Vörðufélagar fá Vörðu gulldebetkort. Varðan býður upp á fjármálaþjónustu fyrir einstaklinga og fjölskyldur.

Helsti ávinningur þess að vera með Vörðudebetkort:

  • Aðgangur að þínum eigin þjónustufulltrúa.
  • Aðgangur að greiðsluþjónustu.
  • Vörðufélagar fá betri kjör af ýmiskonar vöru og þjónustu.
  • Vörðufélagar eiga kost á ákveðinni fyrirgreiðslu án trygginga, þetta er þó ákveðið í samráði við þjónustufulltrúa hverju sinni.
  • Ýmis tilboð og afslættir

Vörðu-debetkortið hentar auk þess vel sem launareikningur, fyrir yfirdráttinn og alla daglega notkun.

Hægt er að breyta yfirdrætti í afborgunarsamning á einfaldan og þægilegan hátt.

Ekkert heimildargjald, vextir einungis greiddir af nýttri heimild.

Sækja um Vörðudebetkort

Námu-debetkort

Öllum námsmönnum bjóðast debetkort Námunnar.

Helsti ávinningur þess að hafa Námudebetkort:

  • Mjög hagstæð kjör
  • Hægt er að óska eftir síhringikorti en slíkur eiginleiki minnkar verulega likur á því að úttektir gerðar með debetkorti fari yfir ráðstöfunarfjárhæð reiknings.
  • Aðgangur að eigin þjónustufulltrúa
  • Aðgangur að þjónustu tengdri námslánum frá LÍN, s.s. að skipta niður heimild o.s.frv.
  • Ýmsar vörur og þjónusta á betri kjörum s.s. tölvulán o.fl.
  • Ýmis tilboð og afslættir

Klassakort

Landsbankinn býður öllum krökkum á aldrinum 9-15 ára, sem skráðir eru í Klassa sérstakt Klassakort.

Kortið virkar sem hraðbanka- og gjaldkerakort fyrir fólk á aldrinum 9-12 ára en sem debetkort fyrir fólk á aldrinum 12-15(16) ára.

Kortið virkar einnig sem félagsskírteini og gegn framvísun þess bjóðast ýmiskonar spennandi tilboð og afslættir.