Verðbréfa og lífeyrisráðgjöf veitir ráðgjöf um fjárfestingar í verðbréfum og lífeyrissparnaði. Landsbankinn býður upp á úrval verðbréfasjóða en sjóðirnir eru hagkvæm leið fyrir þá sem vilja hámarka ávöxtun eigna sinna og dreifa áhættunni.
Lykillinn að góðum árangri í fjárfestingum er að gera sér skýra grein fyrir fjárfestingarmarkmiðum sínum, hafa greiðan aðgang að faglegri ráðgjöf og velja hentugar ávöxtunarleiðir.
Reglubundinn sparnaður er ein besta leiðin til að spara. Þú setur þér skýr markmið og ákveður hve háa upphæð þú vilt spara mánaðarlega. Þú getur valið þá sparnaðarleið sem gæti hentað þér með því að setja inn þínar forsendur í fjárfestingatréð. Við áskrift í sjóðum fellur munur á kaup- og sölugengi niður* og enginn kostnaður er tekinn fyrir vörslu sjóða Landsbréfa. Lágmarks áskrift í sjóðum er 5.000 kr á mánuði.
Frekari upplýsingar um verðbréfasjóðina er hægt að nálgast á www.landsbref.is.
Í netbankanum www.einkabanki.is er svo auðveldlega hægt að fylgjast með þróun eignasafnsins og framkvæma viðskipti með verðbréf.
*munur á kaup og sölugengi sjóða er á bilinu 1-2%
Pantaðu ráðgjöf
Á markaðasíðu okkar má sjá upplýsingar um viðskipti dagsins á íslenskum mörkuðum; þróun vísitalna, gjaldmiðla-krossa, vísitölu neysluverðs og fleira.
landsbankinn.is/markadir
Efni frá fjármálakvöldi Landsbankans um hlutabréf sem haldið var 18. apríl 2013.
Ef þú vilt fara yfir núverandi stöðu þína, skoða fjárfestingarmöguleika eða hefja sparnað getur þú komið og hitt fjármálaráðgjafa hjá Landsbankanum.
Þú getur pantað tíma hjá ráðgjöfum okkar hér á vefnum. Einnig er
hægt að hafa samband í síma 410 4040 eða með tölvupósti í netfangið fjarmalaradgjof@landsbankinn.is.
Móttaka Verðbréfa- og lífeyrisráðgjafar er staðsett í Austurstræti 11 og er opin virka daga milli kl. 9.15 og 16.00.
Landsbankinn hf. Austurstræti 11, 155 Reykjavík, Kt. 471008-0280 Swift: NBIIISRE
Swift: NBIIISRE Reglur Lagalegur fyrirvari Umboðsmaður viðskiptavina Starfsfólk Veftré