Þjónustuver bankans er opið alla virka daga milli klukkan 8.00 og 19.00 og á laugardögum frá klukkan 11.00 til 15.00. Ráðgjafar okkar í Þjónustuveri geta veitt þér allar upplýsingar um vörur og þjónustu bankans. Þar getur þú einnig sinnt flestum þínum bankaviðskiptum í gegnum síma þegar þér hentar.
Einnig getur þú sent Þjónustuverinu fyrirspurnir eða athugasemdir á netfangið info@landsbanki.is eða haft samband í gegnum fyrirspurnarform.
Hjá Þjónustuverinu getur þú meðal annars:
- fengið allar upplýsingar um stöðu reikninga
- millifært á milli reikninga
- greitt greiðslukortareikninga
- greitt gíró- og greiðsluseðla
- fengið Fjölgreiðslur VISA
- fengið upplýsingar um þjónustuþætti bankans, gjaldskrá, vexti og gengi gjaldmiðla
- sótt um lífeyrissparnað og tryggingar
- pantað erlendan gjaldeyri og fengið hann afgreiddan við brottför í Flugstöð Leifs Eiríkssonar
- fengið upplýsingar um þjónustu verðbréfasviðs Landsbankans
Hafðu leyninúmerið þitt til taks þegar þú hringir