17. september 2012 - Samstarfi við Saxo Privatbank lokið
Landsbankinn og Saxo Privatbank í Danmörku (áður E*TRADE) hafa hætt öllu samstarfi er varðar erl. verðbréfaviðskipti á vefnum. Saxo Privatbank tók þá ákvörðun í lok árs 2011 að sinna eingöngu dönskum viðskiptavinum á danska markaðnum og hætta jafnframt öllu samstarfi við alla sína erl. samstarfsaðila.
Vegna laga um gjaldeyrismál um skilaskyldu á gjaldeyri sem eru í gildi hér á landi, hefur Landsbankinn ákveðið að bjóða ekki uppá þessa þjónustu áfram, þessi ákvörðun mun jafnframt verða tekin til endurskoðunar um leið og aðstæður leyfa. Öllum verðbréfareikningum hjá Saxo Privatbank sem voru stofnaðir í gegnum Landsbankann hefur nú verið lokað.
Tengt efni
21. maí 2012 - Landsbankinn hættir með Saxo Privatbank reikninga (áður E*TRADE)