Notkun

Auðkenning með rafrænum skilríkjum á netinu jafngildir því að framvísa persónu-skilríkjum. Mörg fyrirtæki og stofnanir geta aukið þjónustu sína á netinu ef þau geta treyst því að viðskiptavinurinn sé sá sem hann segist vera. Rafræn skilríki skapa það traust.

Kostir rafrænna skilríkja

  • Notendanöfnum og lykilorðum á netinu fækkar.
  • Einfalda aðgengi - aðgangur að frekari upplýsingum og þjónustu.
  • Spara sporin, tíma og fjármuni - hægt er að ganga frá hlutum hvenær sem er, hvar sem er. Skiptir engu hvort þú ert heima við, í vinnunni eða hjá þjónustuaðila.
  • Auka öryggi í samskiptum - vafasamir einstaklingar geta ekki villt á sér heimildir.
  • Koma í veg fyrir fölsun - ekki er hægt að breyta gögnum né villa á sér heimildir.
  • Ekki er hægt að hafna skuldbindingum sem gerðar hafa verið með rafrænum hætti (viðskiptasamningar, skattaskil, verðbréfaviðskipti o.fl.).

Auðkenning

Auðkenning með rafrænum skilríkjum á netinu jafngildir því að framvísa persónuskilríkjum. Mörg fyrirtæki og stofnanir geta aukið þjónustu sína á netinu ef þau geta treyst því að viðskiptavinurinn sé sá sem hann segist vera. Rafræn skilríki skapa það traust.

Dæmi um notkun rafrænnar auðkenningar:

  • Netbankar
  • Skattstjórinn - skattframtal
  • Stjórnsýsla - samskipti við stjórnsýslu (t.d. rafræn Reykjavík)
  • Háskólar - samskipti innan skóla
  • Ýmsir þjónustuveitendur (t.d. símafyrirtæki, tryggingarfélög)
Nánar um þjónustuveitur

Undirskrift

Undirskrift með rafrænum skilríkjum jafngildir hefðbundinni undirskrift. Rafræn undirskrift tengir upplýsingar við tiltekinn einstakling.

PIN-númer

PIN stendur fyrir "Personal Identification Number" og er 6 stafa lykilorð (PIN) sem skilríkjahafi velur sjálfur við afhendingu skilríkja. Mikilvægt er að velja PIN-númer sem ekki er auðtengjanlegt einstaklingnum. Sjá: skilriki.is

PIN-númerin sem fylgja rafrænum skilríkjum eru tvö:

  • PIN-númer til auðkenningar
    (fyrstu 4 tölustafirnir)
  • PIN-númer til undirskriftar
    (allir 6 tölustafirnir)

PUK-númer

PUK stendur fyrir Pin Unblocking Key og er opnunarlykill fyrir rafræn skilríki. Til þess að virkja rafrænu skilríkin og/eða breyta PIN-númeri þarf PUK-númer.

Áður en skilríkin eru tekin í notkun þarf að virkja þau. Það er gert við afhendingu debetkorts.

PUK-númer - leiðbeiningar

Skilríkin afhent

Skilríkin eru afhent á afgreiðslustöðum banka og sparisjóða. Til þess að fá skilríki afhent þarf væntanlegur skilríkjahafi að færa sönnur á að hann sé réttur viðtakandi með því að framvísa skilríkjum gefnum út af opinberum aðila: Vegabréfi, ökuskírteini eða nafnskírteini.

Þegar komið er í banka/sparisjóð þarf væntanlegur skilríkjahafi að:

  • Hafa valið sér 6 stafa PIN fyrir rafræn skilríki (skráð við afhendingu skilríkja).
  • Hafa kynnt sér áskriftarsamninginn ( www.skilriki.is ).
  • Hafa meðferðis PUK númer (hægt að nálgast í Netbanka).
  • Hafa meðferðis gild, opinber skilríki (gefin út af íslenska ríkinu).

Hugbúnaður

Nexus Personal er hugbúnaður sem nauðsynlegt er að hafa til að geta notað rafrænu skilríkin. Hann er hægt að nálgast án endurgjalds hér á vef Landsbankans og á www.skilriki.is . Hugbúnaðurinn er afar einfaldur í uppsetningu og notkun.

Nánri upplýsingar um uppsetningu hugbúnaðar

Lesarar

Til að nýta rafræn skilríki þarf að vera hægt að lesa þau af debetkortinu. Þetta er gert með sérstökum lesurum, sem geta verið innbyggðir í tölvur notenda eða tengdir þeim t.d. með USB tengi. Ef lesari er ekki innbyggður er hægt að kaupa þá hjá flestum tölvuvöruverslunum en einnig selur Landsbankinn slíka lesara á kostnaðarverði sem er samkvæmt gjaldskrá hverju sinni.

Viltu breyta lykilorði rafrænu skilríkjanna?

  1. Veldu "Skrá" og smelltu á "Breyta PIN-númeri" í fellilistanum.
  2. Lestu fyrirmælin í glugganum og smelltu síðan á "Áfram".
  3. Hægt er að breyta PIN-númeri til undirritunar eða auðkenningar. Veldu annað hvort og smelltu á "Áfram". Athugaðu að PIN-númerin breytast ekki bæði í einu, þ.e. ef aðeins undurritunar-PIN er breytt er auðkenningar-PIN enn það sama og áður.
  4. Lestu fyrirmælin, veldu aðgerð og smelltu á "Áfram".
  5. Sláðu inn núverandi PIN-númer og síðan nýja PIN-númerið tvisvar. Mikilvægt er að vanda val á PIN-númeri. Smelltu á "Áfram".
  6. Lestu fyrirmælin og smelltu á "Ljúka". PIN-númerinu hefur nú verið breytt.

Viltu breyta tungumáli viðmóts Nexus Personal hugbúnaðarins?

  1. Veldu "Skoða" og smelltu á "Stillingar" í fellilistanum.
  2. Veldu flipann "Tungumál og vafrastillingar".
  3. Smelltu á örina í tungumálaglugganum og veldu "Íslenska" af fellilistanum.
  4. Smelltu á "Í lagi". Nexus Personal hugbúnaðurinn slekkur sjálfkrafa á sér og enduropnast til að virkja breytinguna.