Þú getur skráð þig fyrir aðgangi að Meniga gegnum netbankann.
Þú smellir á „Innskráning“ efst í hægra horni og þá opnast innskráningarglugginn. Næst smellir þú á tengilinn „Gleymt lykilorð“, neðst í innskráningarglugganum, slærð inn netfangið sem þú notar til að skrá þig inn í Meniga og færð þá sendan tölvupóst með leiðbeiningum um hvernig þú býrð til nýtt lykilorð.
Skoða kennslumyndband
Þú velur flipann „Aðgangsupplýsingar“ undir liðnum „Stillingar“ (efst til hægri á vefnum) og þar er þér boðið að breyta aðgangsupplýsingum þínum, eins og netfangi og lykilorði.
Skoða kennslumyndbönd:
Breyta netfangi
Breyta lykilorði
Nei, gagnaöryggi er tryggt með margvíslegum hætti á vef Meniga. Í fyrsta lagi er Meniga vefurinn tæknilega eins öruggur og vefir fjármálastofnana. Í öðru lagi veit Meniga ekki hver notandinn er (biður ekki um persónugreinanlegar upplýsingar). Í þriðja lagi hefur Meniga eingöngu lesaðgang að reikningum notenda þannig að ekki er hægt að framkvæma neinar fjárhagslegar færslur á Meniga.is. Í fjórða lagi ábyrgist Meniga meðferð allra upplýsinga um notendur.
Sjá nánar: Öryggis- og persónuverndarstefna Meniga
Já, það gerir þú með því að velja „Færslur“ í aðalvalmynd. Þú finnur færsluna sem þú vilt eyða, velur hana og smellir svo á „Eyða færslu“ hnappinn í boxinu vinstra megin. Athugið að ekki er hægt að afturkalla færslu sem hefur verið eytt.
Ef þú vilt sleppa færslu úr bókhaldi án þess að eyða henni velur þú flokkinn „Sleppa úr bókhaldi“ undir liðnum „Flokkur“ í boxinu hægra megin.
Skoða kennslumynband
Nei, það er ekki hægt en þú getur alltaf fundið færslu sem þú hefur eytt í netbankanum þínum og handslegið hana aftur inn í Meniga með því að velja liðinn „Færslur“ í aðalvalmyndinni og smella þar á „Ný færsla“ hægra megin á færslustikunni.
Já, þú getur tengt alla reikninga og kort við Meniga. Reikningar og kort sem þú tengir við Meniga gegnum netbankann uppfærast sjálfvirkt en reikninga og kort frá öðrum fjármálastofnunum verður þú að færa handvirt inn.
Við mælum með því að sambýlingar noti Meniga saman. Ef þú vilt fá aðgang að reikningum maka þarf viðkomandi að byrja á að skrá sig í Meniga gegnum netbankann sinn.
Í Netbankanum velur makinn hvaða reikninga og kort viðkomandi vill tengja við Meniga og velur svo að opna/tengjast Meniga. Þá kemur upp glugginn „Hvernig viltu skrá þig?“. Þar velur makinn leið tvö: „Nýskrá mig og samtengja við maka sem er þegar með aðgang“ og slær þar inn þitt netfang og lykilorð. Að skráningarferlinu loknu er aðgangur ykkar orðinn sameiginlegur. Einnig er hægt að sameina aðgang tveggja Meniga notenda síðar í Meniga kerfinu með því að velja "Stillingar: Notendur" og velja þar "Tengjast notanda".
Ef þú vilt fá aðgang að reikningum maka sem er ekki með netfang þarf hann að byrja á að skrá sig í Meniga gegnum netbankann.
Í netbankanum velur makinn hvaða reikninga og kort viðkomandi vill tengja við Meniga og velur svo að opna/tengjast Meniga. Þá kemur upp glugginn „Hvernig viltu skrá þig?“. Þar velur makinn leið þrjú: „Ég er þegar með Meniga aðgang og vil tengja reikninga og kort frá Mínum banka“ og slær þar inn þitt netfang og lykilorð. Að skráningarferlinu loknu er aðgangur ykkar orðinn sameiginlegur.
Já, þú gerir það með því að velja „Færslur“ í aðalvalmynd, finna færsluna sem þú vilt færa á milli tímabila, smella á dagsetningu hennar og velja nýja dagsetningu. Þetta getur t.d. hentað þegar laun eru greidd út í lok mánaðar en tilheyra raunverulega næsta mánuði.
Já, þú gerir það með því að velja „Færslur“ í aðlavalmynd, finna færsluna sem þú vilt færa á milli flokka, smella á flokkinn og velja nýjan flokk. Efst birtast þeir flokkar (á dökkbláum grunni), sem líklegastir eru.
Flest fyrirtæki og stofnanir eru flokkuð eftir því hver aðalstarfsemi þeirra er. Þegar fyrirtæki eða stofnun rekur margs konar starfsemi, t.d. verslun sem selur bæði matvöru og fatnað, getur verið erfitt að finna einn flokk sem lýsir allri starfseminni. Ef færsla er rangt flokkuð þarft þú að færa hana í réttan flokk. Það gerir þú með því að smella á flokkinn og velja nýjan flokk. Meniga man breytingar sem gerðar eru á sjálfvirkri flokkun og aðlagast þannig neyslumynstri þínu.
Líklegasta ástæðan er sú að laun, sem tilheyra næsta mánuði, hafi verið greidd út fyrir mánaðamót. Það sama getur átt við um ýmis útgjöld, þ.e. að þau hafi verið greidd í öðrum mánuði en þau tilheyra. Til að leiðrétta þetta smellir þú á dagsetningu færslunnar og velur nýja dagsetningu.
Ef strikað er yfir færslu reiknast hún ekki með í bókhaldi. Þetta er gert til að koma í veg fyrir að færslur milli eigin reikninga og innborganir á greiðslukort verði tvítaldar. Færslur sem þú hefur valið að sleppa úr bókhaldi eru einnig yfirstrikaðar.
Já, þú getur slegið inn færslur sem ekki koma fram á reikningum þínum eða kortum, t.d. þegar þú færð tekjur í reiðufé og útgjöld á móti þegar þú notar peningana. Innslegnar færslur eru sýndar sem færslur á sérstökum reikningi sem kallast „veski“. Þú skráir nýja færslu með því að velja liðinn „Færslur“ í aðalvalmyndinni og smella þar á „Ný færsla“ hægra megin á færslustikunni.
Nei, viðskiptavinir Landsbankans geta nýtt sér Meniga endurgjaldslaust.
Landsbankinn hf. Austurstræti 11, 155 Reykjavík, Kt. 471008-0280
Swift: NBIIISRE Reglur Lagalegur fyrirvari Umboðsmaður viðskiptavina Veftré