Ýmsar upplýsingar

Auðkennislykill er tæki sem notað er til að auka öryggi við innskráningu í netbanka Landsbankans.

Hver auðkennislykill framkallar númer úr fyrirfram ákveðinni, dulkóðaðri númeraröð þegar ýtt er á gúmmíhnappinn á hlið lykilsins. Í hvert sinn sem viðskiptavinur notar Einka-/Fyrirtækjabankann þarf hann að kalla fram nýtt auðkennisnúmer með þessum hætti og slá það inn ásamt notendanafni og lykilorði við innskráningu.

Í núverandi netumhverfi er hætta á að tölvuþrjótar geti komist yfir notendanöfn og lykilorð með ólöglegum hugbúnaði. Með notkun auðkennislykils er komið í veg fyrir að hægt sé að misnota þessar upplýsingar þar sem auðkennisnúmer eru síbreytileg.

Allir notendur Einka-/Fyrirtækjabanka þurfa að nota auðkennislykil við innskráningu og hver og einn getur aðeins haft einn auðkennislykil.

Notkun auðkennislykils

Skráning

Skráning auðkennis

Auðkenni er skráð með því að fara inn í Einka-/Fyrirtækjabankann og velja þar aðgerðina „Virkja auðkenni“.

Fyrirtæki með auðkennislykil

Auðkennislykilinn er skráður á einstakling þannig að hægt er að nota sama lykilinn í Fyrirtækjabanka fyrirtækisins sem einstaklingurinn hefur aðgang og á persónulegan netbanka. Auðkennislykill auðkennir einstakling, ekki aðgang.

Varaleið

Hægt er að nota SMS-skeyti sem varaleið við innskráningu. Inni á Einka-/Fyrirtækjabankanum er valið hvort notast eigi við varaleið og skráð inn númer farsíma sem á að senda auðkennisnúmerið í.

Auðkennisnúmer

Númer kallað fram á auðkennislykli

Ýtt er á gúmmíhnappinn á hlið lykilsins og þá birtist nýtt auðkennisnúmer.

Líftími númers

Hvert auðkennisnúmer lifir í 45 sekúndur. Ef sá tími líður áður en notandi skráir sig inn í Einka-/Fyrirtækjabankann þarf að ýta á hnappinn aftur til að fá nýtt númer.

Nýtt númer fengið strax upp á skjáinn

Til að fá strax upp nýtt númer á skjá lykilsins þá er gúmmínhappnum haldið inni þar til núverandi númer hverfur af skjánum. Síðan er ýtt á hnappinn aftur til að fá nýtt númer.                                                                                   

Aðgerðir í netbanka einstaklinga

Innskráning í netbanka einstaklinga 

Við innskráningu í netbankann þarf nú einnig að skrá inn auðkennisnúmer til viðbótar við notendanafn og lykilorð. Nauðsynlegt er að skrá inn alla tölustafina í auðkennisnúmerinu, einnig núllið sem er fremst.

Greiðslur í netbanka

Með tilkomu auðkennislykilsins breytist eingöngu innskráning í netbanka. Staðfesting greiðslna með núverandi öryggisnúmeri helst óbreytt.

Geymsla og kostnaður

Geymsla auðkennislykils

Auðkennislykillinn er viðkvæmur búnaður og þolir ekki mikið hnjask. Á lyklinum er hringur sem hægt er að festa við lyklakippu. Gæta þarf þess að óviðkomandi komist ekki yfir auðkennislykilinn.

Verð á auðkennislykli

Notendur greiða ekkert fyrir fyrsta auðkennislykilinn. Ef lykill týnist er hægt að fá nýjan lykil gegn vægu gjaldi.

Kostnaður við notkun auðkennislykils

Notkun á auðkennislyklinum er gjaldfrjáls, engin færslugjöld eru innheimt.

Einka-/Fyrirtækjabankinn samþykkir ekki auðkennisnúmerið

Ef númer er kallað fram á lyklinum oft án þess að það sé notað til innskráningar getur komið upp vandamál, þar sem miðlarinn, sem er hýstur hjá Reiknistofu bankanna, og lykillinn eru ekki sammála um hvar í röðinni notandi er staddur. Þá þarf að fara fram samstilling en þá gefur notandi upp tvö mismunandi auðkennisnúmer í valmynd netbankans.

Auðkennislykill ekki til staðar

Ef lykillinn er ekki til staðar er hægt að nota varaleið með því að biðja um að auðkennisnúmer sé sent sem SMS í farsímann þinn.

Glataður auðkennislykill

Ef lykill glatast þarf að fá nýjan í næsta útibúi. Gjald fyrir nýjan lykil fer eftir verðskrá bankans hverju sinni

Læstur auðkennislykill

Þegar rangt númer er skráð inn þrisvar sinnum í innskráningu er farið í aðgerð sem kallast "samstilling" og er notandi þá beðinn um tvö auðkennisnúmer. Ef þessi tvö númer eru einnig röng læsist lykillinn. Til að aflæsa lyklinum þarf að hafa samband við þjónustuver bankans, 410-4000, eða fara í næsta útibú.

Númer kemur ekki upp þegar ýtt er á takkann

Ef erfitt reynist að framkalla númerið getur þessi tiltekni auðkennislykill verið gallaður. Þá þarf að fara í næsta útibú og fá nýjan lykil.