Virkjun auðkennislykils

Auðkennislykill er tæki sem notað er til að auka öryggi við innskráningu í netbanka Landsbankans.

Áður en auðkennislykillinn er tilbúinn til notkunar þarf að virkja hann og tengja hann eigandanum. Það er gert eftir innskráningu í netbankann (án þess að nota auðkennisnúmer). Þá skal velja "Stillingar" -> "Auðkenni" og fer þar virkjun lykilsins fram í þremur einföldum skrefum sem lýst er hér að neðan.

Skýringarmyndband um virkjun auðkennislykilsins (Flash)

Skref 1 af 3

Lesið skilmálana og samþykkið.

Skref 2 af 3

Skráið inn raðnúmer lykilsins tvisvar til að virkja hann. Raðnúmerið er að finna aftan á lyklinum og á umbúðum hans.

Raðnúmer á bakhlið auðkennislykilsins

Skráið næst inn tvö mismunandi auðkennisnúmer í röð:

  • Ýtið á hnappinn á auðkennislyklinum og sláið inn auðkennisnúmerið sem hann birtir.
  • Ýtið aftur á hnappinn og haldið honum inni þar til númerið hverfur af skjánum.
  • Ýtið á hnappinn í þriðja sinn til að fá nýtt auðkennisnúmer og sláið það einnig inn.
  • Smellið á "Áfram"-hnappinn á síðunni.
Auðkennisnúmer á framhlið auðkennislykilsins

Skref 3 af 3

Nú er tengingu auðkennislykilsins við kennitölu lokið. Framvegis þarft þú að nota þennan auðkennislykil við innskráningu í netbankann, ásamt notendanafni og lykilorði.

Boðið er upp á þann möguleika að skrá SMS-varaleið sem hægt er að nota þegar auðkennislykillinn er ekki við höndina. Til að skrá SMS-varaleið skal smella á "Stilla SMS varaleið" og fylgja leiðbeiningum þar.

Aftur á innskráningarsíðu netbanka einstaklinga

Ýmsar upplýsingar um auðkennislykilinn