6. nóvember 2012
Ekki er lengur þörf á að nota auðkennislykil við innskráningu í netbanka einstaklinga
Nýtt öryggiskerfi Landsbankans fyrir netbanka einstaklinga hámarkar öryggi notandans, eykur þægindi við notkun og dregur úr líkum á fjársvikum og annarri misnotkun.
Mesta breytingin er sú að auðkennislykillinn verður óþarfur við innskráningu og aðgerðir í netbanka. Í staðinn er komið kerfi sem lærir að þekkja hegðun notandans og biður um staðfestingu á auðkenni, t.d. með því að svara öryggisspurningu eða símtali úr kerfinu, ef brugðið er út af hefðbundinni notkun. Að öllu jöfnu finnur viðskiptavinurinn þó ekki fyrir kerfinu.
Nánar um nýtt öryggiskerfi