Gjaldeyrisafgreiðsla á Keflavíkurflugvelli

Landsbankinn annast gjaldeyrisþjónustu fyrir ferðamenn í gjaldeyrisafgreiðslum sínum í Flugstöð Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli, bæði fyrir komu- og brottfararfarþega.

Afgreiðslutímar

Neðri hæð

Alla daga vikunnar frá kl. 05:30 til 17:00 og kl. 21:00 til 01:00

Efri hæð (brottfararsalur)

Alla daga vikunnar frá kl. 05:30 til 17:00 og kl. 22:00 til 01:00.

Tax free

Alla daga vikunnar frá kl. 05:30 til 17:00 og kl. 22:00 til 01:00.

Einnig er veitt ýmis almenn bankaþjónusta, s.s. móttaka innleggja, Western Union hraðsendingarþjónusta og erlendar millifærslur.

Að auki annast bankinn endurgreiðslu virðisaukaskatts (tax refund) til erlendra ferðamanna og Íslendinga sem búsettir eru erlendis í sérstakri afgreiðslu á brottfararsvæði.

Landsbankinn veitir víðtæka hraðbankaþjónustu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar, bæði á brottfararsvæði og í komusal, þ.á. meðal með gjaldeyrishraðbönkum. Tveir gjaldeyrishraðbankanna eru staðsettir við afgreiðsluna á brottfararsvæðinu. Hægt er að taka út gjaldeyri bæði með debet- og kreditkortum í sex gjaldmiðlum, evrum, dollurum, sterlingspundum, dönskum kr., sænskum kr. og norskum kr. Einnig eru venjulegir hraðbankar við farangursmóttöku og útibú bankans í komusal á neðri hæð.

Sími: 410 4144
Netfang: 0144@landsbankinn.is