Um Hagfræðideild

Hagfræðideild Landsbankans

Hagfræðideildin annast rannsóknir og greiningu á efahagsumhverfinu með það að markmiði að miðla upplýsingum til starfsmanna og viðskiptavina Landsbankans. Deildin heyrir undir Áhættustýringu bankans og er því óháð tekjueiningum bankans.

Stefna og helstu markmið

  • Efla orðspor og traust Landsbankans með vönduðu efni
  • Setja fréttir af efnahagsmálum og mörkuðum í víðara samhengi og stuðla með því að upplýstri umræðu um efnahagsmál.

Útgáfa

Útgáfur deildarinnar eru fjölbreyttar og birtast undir 5 megin flokkum.

  • Í vikubyrjun. Vikulegt markaðs- og hagvísayfirlit.
  • Hagsjá. Þar birtast stuttar greiningar á afmörkuðum viðfangsefnum, svo sem þróun helstu hagvísa og væntanlegum breytingum á stýrivöxtum Seðlabankans.
  • Vegvísir. Mánaðarrit Hagfræðideildar. Ritið kemur út 10 sinnum á ári og fjallar um þróun og horfur í efnahagsmálum undanfarinn mánuð.
  • Sérrit Hagfræðideildar. Ítarlegar greiningar á afmörkuðu efnisflokkum svo sem einstökum atvinnuvegum, atvinnumálum og fasteignamarkaði
  • Þjóðhagur. Ársrit Hagfræðideildar. Í því er að finna ítarlega greiningu á þróun og horfum hagkerfisins til næstu ára, ásamt verðbólgu og þjóðhagsspá.