Dagbók
Dagbók Eignastýringar skiptist í umfjöllun um innlendan markað og alþjóðlegan
- Innlendi hlutinn lýsir framvindu á íslenskum verðbréfamarkaði og helstu þáttum í þjóðarbúskapnum sem eru líklegir til að hafa áhrif á ávöxtun á næstunni.
- Í alþjóðlega hlutanum er að finna tölur um 44 þætti alþjóðlega markaðsins fyrir hlutabréf, skuldabréf, hrávörur og gjaldmiðla og fylgst með horfum um ávöxtun á hverjum tíma.
Fræðilega hliðin
Eignastýring
Hér er fjallað um eignastýringu og helstu aðferðir sem fjárfestar beita við að byggja upp eignir í hlutabréfum og skuldabréfum. Mikil breyting hefur orðið á aðferðum eignastýringar síðustu hálfa öldina, bæði vegna nýjunga í upplýsingatækni og alþjóðavæðingar markaðins.
Nánar
Tæknigreining
Saga tæknigreiningar á Vesturlöndum hefst með ritstjórnargreinum Charles H. Dow í Wall Street Journal fyrir aldamótin 1900. Með tölvuvæðingu síðasta aldarfjórðunginn hefur runnið upp nýtt skeið í sögu tæknigreiningar þar sem klassísku aðferðirnar hafa sannað gildi sitt.
Nánar
Höfundar efnis
Dagbók Eignastýringar er skrifuð af starfsmönnum Eignastýringar Landsbankans undir ritstjórn dr. Sigurðar B. Stefánssonar sem er formaður Fjárfestingarráðs Eignastýríngar bankans. Undanfarin ár hefur Sigurður haldið úti dagbók í nafni eignastýringar fyrirtækisins Rose Invest hf. Í upphafi árs 2011 sameinaðist það fyrirtæki Landsbankanum. Dagbókin sem skrifuð var á RoseInvest.com á tímabilinu frá september 2009 til júní 2011 eru birt óbreytt á vef Landsbankans.
Nánar
Lagalegur fyrirvari
- Þær upplýsingar sem er að finna á þessu vefsvæði eru unnar af starfsmönnum Landsbankans og eru þær eingöngu veittar í upplýsinga- og fræðsluskyni. Upplýsingarnar fela ekki í sér ráðgjöf um fjármál einstaklinga eða fjárfestingaráðgjöf. Lesa allan fyrirvarann