Eignastýring

Um Eignastýringu

Á grænu, gulu eða rauðu ljósi

Til að fylgja hlutabréfum upp í hækkun og vernda eignir í lækkun skilgreinum við grænt, gult og rautt ljós á markaðnum eftir því hve áhætta er mikil. Á grænu gildir að fylgja hlutabréfum í hækkun, á rauðu að vernda eignir í lækkun og gult ljós merkir varúð.

Nánar

Tvöföldunartími ávöxtunar og uppbygging eigna 

Ávöxtun á ári skiptir mestu við uppbyggingu eigna. Deilum ársávöxtun upp í töluna 72 til að reikna tvöföldunartíma hennar. Með 3% á ári tekur 24 ár að tvöfalda, með 12% aðeins 6 ár og 12 ár að fjórfalda.

Nánar

Tíföldunartíminn

Þegar ávöxtun á ári er 26% tekur þrjú ár að tvöfalda og 10 ár að tífalda eignina. Ef 10% safns ber 26% ávöxtun og restin 4% hækkar safnið úr 100 í 234 á tíu árum, en úr 100 í 148 ef allt safnið ber 4% ávöxtun.

Nánar

Stýring hlutabréfa yfir nokkurra ára sveiflu á markaði 

S&P 500 vísitalan var við gildið 800 árin 1997 og 2002 og enn árið 2009 en náði 1.500 árin 2000 og 2007. Ávöxtun gæti verið 9 til 15% á ári með því að tímasetja markaðinn

Nánar

Sex mismunandi leiðir til að fjárfesta og dreifa áhættu

Hans-Olov Bornemann ritaði nýlega grein þar sem hann dregur fram efasemdir sínar gagnvart fjárfestingu sem byggist á eignaskiptingu (e. strategic asset allocation, SAA) og hlutfallslegri viðmiðun (e. relative return) við vísitölur hlutabréfa og skuldabréfa. Hans-Olov er sjóðstjóri Asset Selection Fund hjá SEB (Skandinaviska Enskilda Banken AB). Hann hlaut “Goldener Bulle” (e. Golden Bull) verðlaunin árið 2009 á sviði eignastýringar (e. “Fund Manager of the Year” category) en þau hefur útgáfufyrirtækið Axel Springer Financial Media veitt einstaklingum fyrir einstaka frammistöðu á sviði viðskipta og fjármála allt frá árinu 1995.

Það var Stefán Halldórsson framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs verkfræðinga sem benti okkur á grein Hans-Olovs og vissa þætti þar sem eiga samleið með þeirri hugsun í fjárfestingu sem Rose Invest hefur kynnt á Íslandi. Kunnum við Stefáni bestu þakkir fyrir og leyfum okkur að segja hér frá greininni, "Is SAA past its sell-by date?" ásamt túlkun okkar.

Nánar


Lagalegur fyrirvari

  • Þær upplýsingar sem er að finna á þessu vefsvæði eru unnar af starfsmönnum Landsbankans og eru þær eingöngu veittar í upplýsinga- og fræðsluskyni. Upplýsingarnar fela ekki í sér ráðgjöf um fjármál einstaklinga eða fjárfestingaráðgjöf. Lesa allan fyrirvarann

Tengt efni

Erindi Sigurðar B. Stefánssonar um erlendar eignir lífeyrissjóðanna flutt á sjóðfélagafundi Gildis lífeyrissjóðs miðvikudaginn 23. nóvember 2011.