Dagbók Eignastýringar

Dagbókinni er ætlað að upplýsa lesendur um framvindu á innlendum og erlendum fjármálamarkaði. Megináhersla er á þá þætti sem hafa áhrif á ávöxtun verðbréfa og stýringu eigna innanlands og utan. | Nánar um Dagbók Eignastýringar

Hækkunarleggurinn 2012 styrkist með hækkun í kauphöllum víða um heim

Þriðja vikan 2012 reynist renna styrkari stoðum undir hækkunarlegginn frá síðustu viku í desember 2011 þar sem hækkunar gætir nú í fleiri og fleiri kauphöllum um allan heim. Tafla 1 fyrir þriðju viku sýnir að hlutabréfavísitölur allra 22 landa í efri hlutanum hækka í vikunni, aðeins tvær vísitölur atvinnugreina í Bandaríkjunum lækka af 33 þáttum alþjóðlegs hlutabréfamarkaðs í töflunni. Hækkun læðist þó áfram í dræmri veltu eins og mynd 3 sýnir hér á eftir.

BRIC löndin, Brasilía, Rússland, Indland og Kína, sköruðu fram úr á hlutabréfamarkaði á síðasta áratug og hlutabréf þar hækkuðu meira en í öðrum ríkjum. Frá 2010 og 2011 hafa þau átt erfitt uppdráttar á heimsmarkaði, að hluta vegna ofriss árin 2009 og 2010. Vegna mikilvægis þessara ríkja í heimsbúskapnum er erfitt að sjá fyrir sér heilbrigðan og hækkandi hlutabréfamarkað án þátttöku kauphallanna í BRIC löndum. Mynd 1 sem er vikukort af Bovespa vísitölunni í Brasilíu sýnir að stökkbreyting í viðskiptum með hlutanbréf í Brasilíu verður í þriðju viku 2012 – eins og lengi hafði verið vænst. Hækkun er 5,35% og

Þriðja vikan 2012 reynist renna styrkari stoðum undir hækkunarlegginn frá síðustu viku í desember 2011 þar sem hækkunar gætir nú í fleiri og fleiri kauphöllum um allan heim. Tafla 1 fyrir þriðju viku sýnir að hlutabréfavísitölur allra 22 landa í efri hlutanum hækka í vikunni, aðeins tvær vísitölur atvinnugreina í Bandaríkjunum lækka af 33 þáttum alþjóðlegs hlutabréfamarkaðs í töflunni. Hækkun læðist þó áfram í dræmri veltu eins og mynd 3 sýnir hér á eftir.

BRIC löndin, Brasilía, Rússland, Indland og Kína, sköruðu fram úr á hlutabréfamarkaði á síðasta áratug og hlutabréf þar hækkuðu meira en í öðrum ríkjum. Frá 2010 og 2011 hafa þau átt erfitt uppdráttar á heimsmarkaði, að hluta vegna ofriss árin 2009 og 2010. Vegna mikilvægis þessara ríkja í heimsbúskapnum er erfitt að sjá fyrir sér heilbrigðan og hækkandi hlutabréfamarkað án þátttöku kauphallanna  í BRIC löndum. Mynd 1 sem er vikukort af Bovespa vísitölunni í Brasilíu sýnir að stökkbreyting í viðskiptum með hlutabréf í Brasilíu verður í þriðju viku 2012 – eins og lengi hafði verið vænst. Hækkun er 5,35% og meiri en annars staðar þar sem mælingar í töflu 1 ná til. Norðurlönd eru í öðru sæti með 5,2%. Hlutabréf á Norðurlöndum eru 18% á eftir S&P 500 síðustu 12 mánuði en fara á gult ljós í vikunni til föstudags 20. janúar 2011. Bovespa á 14,2% eftir upp að hágildi sínu frá 5. nóvember 2010  (sjá mynd 1) en er komin 21,6% yfir lággildi frá 7. október 2011.

 

Mynd 1 Bovespa skýst yfir niðurhallandi viðnámslínu þegar í fyrstu viku ársins 2012 en hikandi (sjá uppskottin) og það er ekki fyrr en í þriðju viku sem fjárfestar virðast fullvissir um að aðeins hækkun sé framundan.

Hlutabréf í Asíu hækka um 3,13% í vikunni, aðeins minna en Evrópa sem hækkar um 4,73%

Á mynd 2 er Kospi vísitalan í Seoul í Suður-Kóreu sem hækkar um nærri 4% í vikunni til 20. janúar 2011. Hlutabréf í Suður-Kóreu eru á meðal þeirra sterkustu í Asíu um þessar mundir (5% á eftir S&P 500 síðustu tólf mánuði). Mikilvægt er fyrir nýtt hækkunarskeið að þau séu leiðandi. Í þriðju viku skýst Kospi upp yfir og lokar langt yfir rauðu 34 vikna línunni og færist við það á gult ljós (tafla 2). Ef svo fer sem

 

Mynd 2 Hækkun í Suður-Kóreu hefur verið hikandi og hæg síðustu vikur, að hluta vegna atburða í nágrannaríkinu Norður-Kóreu. Nú eru fjárfestar sáttir við að hella peningum í hlutabréf þar á ný.

horfir er þess ekki langt að bíða að Suður-Kórea verði komin á grænt ljós eins og aðrar leiðandi kauphallir á sviði alþjóðlegra hlutabréfa. Veitið athygli MACD línunni þar sem kaupmerki kom í ljós í október 2011. Halli línunnar er þó lítill (græna 13 vikna línan sækir ekki hratt að rauðu 34 vikna línunni) en gæti aukist á næstu vikum.

 

Mynd 3 Hlutabréfavísitalan á NYSE, New York Stock Exchange, rýkur upp í þriðju viku og lokar í gildinu 7829, aðeins yfir hágildi frá október 2011.

Þrátt fyrir ríkulega hækkun í þriðju viku ársins 2012 virðist eins og fjárfestar á alþjóðlegum markaði séu enn hikandi, vantrúaðir og ef til vill ringlaðir í ljósi fréttaflutnings. Það sýnir velta á New York Stock Exchange vel og vikukort á mynd 3 sýnir hve dræm hún hefur verið síðustu þrjár vikur. Á dagkorti sést að ekki hefur verið mjög góð velta á NYSE síðan 16. desember 2012 sem þó var aðeins rúmlega í meðallagi.

Hvað er í stöðunni? Ein besta vika á alþjóðlegum hlutabréfamarkaði mánuðum saman

Hækkun á hlutabréfamarkaði án þess að staðfesting fylgi með kröftugri veltu vekur áhyggjur af því hve lengi sú hækkun getur staðið. Lítil velta sýnir að ,,Big Money“ er ekki með í för nema að litlu leyti. Markaðstúlkendur telja að ekki sé mikið um þátttöku almennra fjárfesta í Bandaríkjunum á árinu 2012 enn sem komið er.

Ein helsta regla á Wall Street á eftir þeirri allra fyrstu (ekki tapa peningum) er: ,,The trend is your friend – until it ends“. Merkingin er sú að aðeins er unnt að njóta hækkunar á verði hlutabréfa á meðan stefna þeirra er til hækkunar. Enginn er þess umkominn að segja til um hve lengi sú stefna helst óbreytt. Eina leiðin er að fylgja henni alla leið uns merki birtast á kortum um breytingu. Skráð verð á hlutabréfum á markaði er jafnan mikilvægast; velta er í öðru sæti á eftir verði. 

  

Tafla 1 Af 33 þáttum hlutabréfamarkaðs lækka aðeins tveir í þriðju viku 2012, gullnámufyrirtæki og veitufyrirtæki (varnargrein). Skuldabréf lækka einnig í verði.

Í þriðju viku til föstudags 20. janúar verða alls tíu breytingar í litakerfi Eignastýringar en í síðustu viku voru þær tólf. Alls 22 breytingar (helmingur af 44) á tveimur vikum er fátítt og hafa þarf í huga að allar breytingarnar eru í átt til hins betra. Að auki er athyglisvert að núna eru helstu breytingar í  kauphöllum í Asíu og í Evrópu en í annarri viku voru þær á markaði í Bandaríkjunum. Græni og guli liturinn er því farinn að teygja sig um allan heimsmarkað sem er merki um styrk.

  

Tafla 2 Samtals 22 þættir alþjóðlegs fjármálamarkaðs hafa farið af rauðu ljósi á gult eða af gulu á grænt ljós á tveimur vikum. Svo mikil breyting á skömmum tíma er mjög fátíð.

Í töflu 2 er athyglisvert hvernig breyting frá rauðu ljósi á gult og af gulu á grænt færist frá Bandaríkjunum í annarri viku (13.1.2012) yfir til Asíu- og Kyrrahafslanda og til Evrópu í þriðju viku (20.1.2012). Ekki er vafa undirorpið að hækkun í helstu kauphöllum í þessum heimsálfum styrkir verulega hækkunarlegginn sem hrökk í gang í síðustu vikunni í desember 2011.

,,Consumer Discretionary“, lífstílsfyrirtækin eru leiðandi á Wall Street

Fáeinar atvinnugreinar í Bandaríkjunum eru leiðandi í þeim skilningi að þær hafa hækkað meira en meðaltal þeirra, S&P 500, eins og sést í þriðju blokkinni í töflu 1 hér að framan. Kortið á mynd 4 sýnir XLY, kauphallarsjóð sem speglar vísitölu lífstílsfyrirtækja í S&P 500, og þar kemur líka fram hver tólf stærstu fyrirtækin eru.

  

Mynd 4 Vikukortið sýnir hvernig ,,lífstílsfyrirtækin“ (e. Consumer Discretionary) skjótast yfir hágildi í júlí 2011.  Sú grein er leiðandi – en fylgir markaðurinn í heild á eftir?

Hér er vikukort XLY  sýnt sérstaklega vegna þess að í þriðju viku 2012 skaust kauphallarsjóðurinn yfir hágildi ársins 2011 og er í hópi þeirra fyrstu til að ná þeim árangri. Kauphallarsjóðurinn sýnir markaðsvegið meðaltal fyrirtækjanna í lífstílsvísitölunni. Stærsta fyrirtækið er McDonalds veitingahúsakeðjan en á árinu 2011 hækkaði MCD úr um $75 í yfir $100 en stendur við lokun föstudags 20. janúar í $101,74. Starbucks, annað fyrirtæki í vísitölunni, hækkaði líka verulega árið 2011 eða úr um $32 í $47.

 

 

Hvað fannst þér um þessa grein? Láttu okkur vita

Lesa grein


Lagalegur fyrirvari

  • Þær upplýsingar sem er að finna á þessu vefsvæði eru unnar af starfsmönnum Landsbankans og eru þær eingöngu veittar í upplýsinga- og fræðsluskyni. Upplýsingarnar fela ekki í sér ráðgjöf um fjármál einstaklinga eða fjárfestingaráðgjöf. Lesa allan fyrirvarann